Norðurlandamótið 2025 á Íslandi
Norðurlandamótið 2025 verður haldið á Laugarvatni 5. - 8. júní 2025.
Stjórnarfundur 05. febrúar 2003
Mættir á fundinn: Jón Sigurbjörnsson, Anton
Haraldsson, Ísak Örn Sigurðsson, Matthías Þorvaldsson, Erla
Sigurjónsdóttir, Haukur Ingason og Elín Jóhannsdóttir. Fundargerð
rita: Elín Jóhannsdóttir ( 1. - 3. ) og Ísak Örn Sigurðsson ( 3. -
4. )
1. Skýrsla forseta. Forseti sagði frá því að undirbúningur fyrir Bridgehátið 2003
væri í fullum gangi þó að það væri nú aðallega framkvæmdastjóri sem
annaðist hann. |
2. Fræðslumál. Matthías sagði frá því að um 140 krakkar væru að fara af stað í
Minibrids og væru það 2 skólar sem væru þátttakendur í því. Þá var
það rætt að reyna að fá meiri fjölmiðlaumræðu um þessi mál því það
væri besta auglýsingin. |
3. Bréf og önnur erindi.
a) Bréf hafði borist frá Sveini Rúnari um hvort ekki ætti að
setja skilyrði um að reglugerð ætti að vera til staðar þegar
silfurstigamót væru haldin. Í umræðunni þar um kom fram, að sækja
þyrfti um silfurstigamót (önnur en svæðamót) og að þessi reglugerð
væri margbrotin |
4. Önnur mál. Stjórnin þakkar góðar ábendingar um siða- og hegðunarreglur sem
Bridgefélag Reykjavíkur leggur fram og lýsir yfir ánægju með að
umræðan er lífleg um þessi málefni. Laga- og keppnisreglunefnd
setur sig að sjálfsögðu ekki á móti að félög innan sambandsins
minni félagsmenn sína á að viðhafa almenna kurteisi við spilaborðið
og bendi á reglur þar um. Nefndin telur að ekki sé ástæða til að
BSÍ setji sérstakar siðareglur þar um. |
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar