15. janúar 2003
miðvikudagur, 15. janúar 2003
Stjórnarfundur 15. janúar 2003
Mættir á fundinn: Jón Sigurbjörnsson, Anton
Haraldsson, Birkir Jónsson, Ísak Örn Sigurðsson, Matthías
Þorvaldsson, Kristján Már Gunnarsson, Elín Jóhannsdóttir og
Stefanía Skarphéðinsdóttir.
1. Skýrsla forseta
Forseti lagði fram stefnumótun fyrir árið 2002-2003 þar sem
höfuðáherlsa er lögð á fræðsumál. Einnig talaði hann um að ljúka
við rekstraráætum fyrir næsta ár strax í vor svo haustið nýttist
betur.
|
2. Skýrsla framkvæmdastjóra
a) Á Bridgehátíð eru væntanlegar fjórar sterkar sveitir:
Boðssveitir:
1) Zia Mahmood, Fallenius, Brogeland, Welland.
2) Fredin, Lindquist, Nyström, Bertheau.
Á eigin vegum:
3) Jason Hackett, Justin Hackett, Helgemo, De Botton.
4) Lars Blakset, Knut Blakset, Sören Christensen, Peter Hecht
Johansen.
Rætt var um töflusýningar á Bridgehátíð og voru allir sammála um að
Bridgehátið mundi setja heilmikið niður ef þeim yrði sleppt. Stefnt
er að því að hafa svæðið fyrir framan spilasalina reyklausa.
b) Unnið er í því að fá öll tilskilin leyfi fyrir húsnæði
Bridgesambandsins og starfsemi þess, en þetta tekur allt sinn
tíma.
c) Bikarkeppni Norðurlandanna verður í Rottneros, Noregi 9.-11. maí
nk.
d) Landsliðum er boðið að taka þátt í 1st SWAN National Team
Tournament 9.feb. sem spiluð er á netinu. Guðmundur Páll kannar
áhugann.
|
3. Styrkveitingar
Tillaga lögð fram um reglur til greiðslu keppnisgjalda á EM í
Menton 2003. Hámarksupphæð kr. 300.000, árangurstengt (sjá nánar) .
Tillagan var samþykkt. Um styrki á önnur mót þarf að sækja um
sérstaklega.
|
4. Siðareglur.
Kynntar voru nýjar siða- og hegðunarreglur B.R. og fengu þær
fjörlegar umræður.
Vísað til laga- og keppnisreglunefndar. Fundarmenn voru almennt
hlynntir því að hægt væri að hafa þær til viðmiðunar, en annars
ættu reglur Bridgesambandsins að gilda..
|
5. Fræðslumál.
Ljósbrá Baldursdóttir skipuleggur fræðsluátak á vorönninni.
Haldin verða tvö bridgenámskeið annað fyrir 13-15 ára og hitt fyrir
framhaldsskólanemendur. Fengnir verða nokkrir grunnskólar til
samstarfs í kennslu minibridge og haldin námskeið fyrir kennara til
að fjölga leiðbeinendum í minibridge.
|
6. Önnur mál
a) Rætt var um nauðsyn þess að selja auglýsingar á spil og að fá
"sponsor" fyrir Íslandsmótið í sveitakeppni.
b) Rætt um hvort ekki mætti setja kennsluefni á netið.
c) Félagakerfið var gagnrýnt vegna þess að inn í það vantaði Monrad
og var ákveðið að kanna hvort hægt væri að bæta því við..
d) Umsókn frá Bridsfélagi SÁÁ um aðild að BSÍ á ný, samþykkt
samhljóða.
e) Nauðsyn þess að ná eldri borgurum inn í BSÍ var líka til
umfjöllunar og að mögulegt væri að hafa lægri félagsgjöld til
bridgefélaga eldri borgara. Jón kannar málið.
Næsti fundur ákveðinn 05.02.2003 kl. 17,15
Feira ekki rættt. Fundi slitið kl. 19,10.
|