Norðurlandamótið 2025 á Íslandi
Norðurlandamótið 2025 verður haldið á Laugarvatni 5. - 8. júní 2025.
Stjórnarfundur 11. desember 2002
Mættir á fundinn: Jón Sigurbjörnsson, Anton
Haraldsson, Kristján Már Gunnarsson, Erla Sigurjónsdóttir, Birkir
Jónsson, Matthías Þorvaldsson, Ísak Örn Sigurðsson, Stefanía
Skarphéðinsdóttir. Fjarverandi: Elín Jóhannsdóttir, Haukur Ingason,
Kristján Örn Kristjánsson.
1. Skýrsla forseta. Búið er að senda menntamálaráðuneyti bréf og óska eftir að
bridge verði viðurkennt sem valgrein í framhaldsskólum. Námsskeið
til eininga er í gangi á Húsavík og á vorönn verður boðið upp á
slíkt námsskeið á Ísafirði. |
2. Skýrsla framkvæmdastjóra.
Stefanía bar stjórninni kveðju frá Gianarigo Rona forseta EBL en
hann var hér á landi á dögunum vegna fundar Alþjóða
Olympíunefndarinnar. Kynnt bréf Rona til Ellerts Schram þar sem
hann hvetur íslensku Olympíunefndina til að veita BSÍ inngöngu.
Stefanía upplýsti að það væri talið mjög ólíklegt að bridge fengi
að vera með á vetrarleikunum 2006. |
3. Fjármál. Lögð fram endurskoðuð fjárhagsáætlun 2002-3. |
4. Landsliðsmál. Jón og Stefanía hafa gengið frá samningum við
landsliðseinvalda.. |
5. Styrkir á mót erlendis.
Samþykkt að Stefanía leggi fram tillögur um breytingar á reglum
vegna styrkja á EM og HM á næsta stjórnarfundi. Ákveðin hámörk og
árangurstenging talin góðir kostir. |
6. Síðan síðast. a) Fræðslumál. |
7. Bréf og önnur erindi.
a) Bridgehátíð. |
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar