11. september 2002
miðvikudagur, 11. september 2002
Stjórnarfundur 11. september 2002
Mættir á fundinn: Guðmundur Ágústsson, Ólafur
Steinason, Ísak Örn Sigurðsson, Sigtryggur Sigurðsson, Erla
Sigurjónsdóttir, Elín Jóhannsdóttir, Matthías Þorvaldsson og
Stefanía Skarphéðinsdóttir.
1. Skýrsla framkvæmdastjóra.
Samningur um sumarbridge var framlengdur um viku.
Tillaga að gjaldskrá vegna salarleigu til veisluhalda o.þ.h.:
Laugardagskvöld kr. 33.000
Bridgefélagar kr. 30.000
Fermingaveislur kr. 28.000 Bridgefélagar kr. 25.000
Nauðsynlegt er að kaupa hljómflutningstæki og meiri búnað í eldhús
vegna útleigunnar. Framkvæmdastjóra veitt heimild til þess.
Krummaklúbburinn spilar annan hvern fimmtudag í vetur,
byrjendakvöld verða á sömu kvöldum og byrja í október. Erfiðlega
gengur að fá dagsetningar fyrir svæðamótin en dagskráin fyrir
Íslandsmótin liggur fyrir og er komin á heimasíðuna. Aðalbreyting
frá fyrri árum er að parasveitakeppnin er færð fram til
nóvember.
NM verður í Færeyjum 19.-24. maí og NM yngri spilara í Finnlandi
23.-29. júní. Framvegis verða NM haldin í S-Svíþjóð í maí á
oddatöluárum.
Jákvæðar fréttir af fræðslumálum: Þorlákur Jónsson verður með
bridgenámskeið fyrir unglinga í skátafélaginu Kópum í vetur og
Björgvin Leifsson verður með bridgekennslu í Framhaldsskólanum á
Húsavík sem metin er til 2 eininga.
|
2. Landsliðin - EM 2002.
Guðmundur Ág. lýsti yfir ánægju með mjög góðan árangur opna
flokksins á EM og sagði hann langt yfir væntingum og þakkaði
þjálfurum beggja flokka fyrir þeirra störf.
Skýrslur frá þjálfurum beggja flokka lagðar fram og ræddar og lýstu
nokkrir stjórnarmenn óánægju sinni með árangur og undirbúning
kvennaliðsins.
Ákveðið að láta næstu stjórn eftir að leggja línurnar vegna
undirbúnings landsliða á næsta keppnistímabili.
|
3. Íslandsmót - spilastaðir.
a) Undankeppni og úrslit Íslandsmóts í sveitakeppni:
Hótel Borgarnes býðst til að halda mótið eins og í fyrra. Eftir
miklar umræður var samþykkt að spila undanúrslitin í Borgarnesi en
úrslitin á Hótel Loftleiðum.
Matthías bókar andstöðu sína við að spila í Borgarnesi.
Ákveðið að gera viðhorfskönnun meðal spilara að móti loknu.
b) Tvímenningurinn:
Hótel Loftleiðir er upptekið og Grand Hótel að hluta til, en
kostnaður þar myndi verða ca. 380.000 kr. Framkvæmdastjóra falið að
kanna hvort
Ármúlaskóli er laus.
|
4. Bikarkeppnin 2002.
Samþykkt að vera ekki með sýningartöflu í undanúrslitum og
úrslitum, en reyna að bæta aðstöðu áhorfenda.
|
5. Önnur mál.
a) Bréf frá Sveini Rúnar Eiríkssyni. Athugasemdir og vangaveltur
vegna reglna um drátt í bikarkeppninni.
b) Bréf frá Karli Sigurhjartarsyni vegna EM á Ítalíu. Stjórnin
hafnar erindinu með vísan til fyrri bókunar.
Fleira ekki rætt. Fundi slitið kl. 19.00
|