5. desember 2001
miðvikudagur, 5. desember 2001
Stjórnarfundur 05. desember 2001
Mættir á fundinn: Guðmundur Ágústsson, Birkir
Jónsson, Anton Haraldsson, Sigtryggur Sigurðsson, Ólafur Steinason,
Kristján Örn Kristjánsson, Elín Jóhannsdóttir og Stefanía
Skarphéðinsdóttir.
1. Síðumúli 37.
a) 5 verktakafyrirtæki voru valin og boðið að taka þátt í lokuðu
útboði vegna framkvæmdanna. Aðeins tvö fyrirtæki skiluðu inn
tilboðum:
1) Bjargtak kr. 10.547.113,00 m/vsk
2) Baldur Jónsson kr. 7.024.589,00 m/vsk
- - frávikstilboð kr. 6.797.735,00 m/vsk
Kostnaðaráætlun útboðs kr. 7.800.000,00 m/vsk
Heildarkostnaðaráætlun vegna breytinganna kr. 13.500.000,00
m/vsk
Samþykkt að ganga að frávikstilboði Baldurs Jónssonar.
b) Raflagnir og önnur verk sem ekki voru í útboðinu.
Bygginganefnd veitt heimild til að ganga frá samningum.
c) Vinna arkitekts skv. vinnuskýrslum varð 78,4 tímar umfram
áætlun. Farið er fram á greiðslu á 60 tímum, þar sem um
viðbótarverkefni var að ræða.
Anton var mjög ósáttur við þessa hækkun og taldi sig hafa verið að
samþykkja tilboð frá arkitektum í september en ekki
kostnaðaráætlun. Brýnt var fyrir
byggingarnefnd að láta stjórnina vita ef meiriháttar
kostnaðarbreytingar verða við framkvæmdir.
|
2. Landsliðsmál.
Guðmundur skýrði frá fundi með landsliðsþjálfurum.
Guðmundur Páll Arnarson verður einvaldur og þjálfari opna
flokksins.
Haukur Ingason hefur tekið að sér að þjálfa kvennalandsliðið og
vera þar
einvaldur og Anton Haraldsson verður áfram með yngri
flokkinn.
Fyrirliggjandi samningsdrög vegna opna flokksins samþykkt.
|
3. Íslandsmót.
Anton lagði til að öll mót á vegum BSÍ sem komast fyrir í
Síðumúlanum yrðu haldin þar. Sagði hann að tillögur myndu koma fram
um breytingar á
undanúrslitum í Íslandsmótinu í tvímenningi.
Fjörlegar umræðu voru um hvort ekki væri hægt að fá inni í t.d.
menntaskólum fyrir stóru mótin.
Stjórnin samþykkir tillöguna.
|
4. Önnur mál.
a) Tölvupóstur frá Sveinbirni Eyjólfssyni um stefnumótun o.fl. í
sambandi við fræðslumál, ræddur.
b) Samþykkt að Guðmundur Páll Arnarson verði með 3 fræðslukvöld
fyrir konur.
Kvennalandsliðsnefndinni, sem starfað hefur undanfarið ár, þökkuð
vel unnin störf. Stjórnin vonast til að njóta krafta þeirra
áfram.
c) Ferðakostnaður stjórnarmanna á fundi.
Guðmundi falið að útbúa reglur þarum.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið kl. 19.00
|