14. nóvember 2001
Stjórnarfundur 14. nóvember 2001
Mættir á fundinn: Guðmundur Ágústsson, Ólafur
Steinason, Ísak Örn Sigurðsson, Sigtryggur Sigurðsson, Erla
Sigurjónsdóttir, Elín Jóhannsdóttir, Birkir Jónsson, Matthías
Þorvaldsson og Stefanía Skarphéðinsdóttir. Gestur: Þorlákur
Jónsson, byggingarnefnd.
1. Skýrsla framkvæmdastjóra.
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2001-2002. Áætlaðar tekjur eru
kr. 24.300.000 en gjöld kr. 23.200.000. Afborganir lána og
vaxtakostnaður kr. 1.800.000. |
2. Dómnefnd BSÍ. Guðmundur Páll Arnarson, formaður |
3. Landsliðsmál. Guðmundur Ágústsson skýrði stöðu mála. Guðmundur Páll Arnarson
tekur jákvætt í að halda áfram með opna flokkinn fram yfir EM
2002. |
4. Síðumúli 37. Byggingarnefnd lagði fram útboðsgögn og kostnaðaráætlun vegna
breytinga á húsnæðinu. Þorlákur útskýrði teikningar og fór yfir
helstu atriði. |
5. Fræðslumál. Guðmundur lagði fram minnispunkta og taldi nauðsynlegt að setja
skýr og raunhæf markmið. Nauðsynlegt sé að vinna að stefnumótun
áður en starfsmaður er ráðinn til útbreiðslumála. |
6. Sveitakeppni 2002. Verið er að leita að húsnæði fyrir undankeppnina. Tilboð frá
Hótel Loftleiðum þykir ekki viðráðanlegt. Reynt að finna annan stað
eða fá betra tilboð. |