29. október 2001
mánudagur, 29. október 2001
Stjórnarfundur 29. október 2001
Mættir á fundinn: : Guðmundur Ágústsson, Ólafur
Steinason, Anton Haraldsson, Sigtryggur Sigurðsson, Birkir Jónsson,
Kristján Örn Kristjánsson, Elín Jóhannsdóttir, Erla
Sigurjónsdóttir, Matthías Þorvaldsson, Ísak Örn Sigurðsson og
Stefanía Skarphéðinsdóttir.
1. Skýrsla framkvæmdastjóra.
Vegna anna er fjárhagsáætlun ekki tilbúin og verður að bíða
næsta fundar.
Landstvímenningurinn 16.nóvember verður haldinn í samstarfi við
Breska Bridgesambandið.
Vinnu við heimasíðuna er að ljúka, á eftir að tengja spjallþráðinn.
Gott væri að fá fleiri pistlahöfunda.
Samþykkt að spila úrslit í tvímenningnum í sal TR í Faxafeni, en ef
hægt verður að útvega styrktaraðila flyst mótið á Loftleiðir.
Ákveðið að halda stjórnarfundi héreftir annan miðvikudag í hverjum
mánuði kl. 17.30.
|
2. Verkaskipting stjórnar.
Varaforseti Ólafur Steinason
Ritari Ísak Örn Sigurðsson
Gjaldkeri Erla Sigurjónsdóttir
Framkvæmdanefnd:
Guðmundur Ágústsson
Ólafur Steinason
Anton Haraldsson
|
3. Skipun fastanefnda.
Mótanefnd:
Ólafur Steinason, formaður
Ísak Örn Sigurðsson
Runólfur Jónsson
Til vara:
Anton Haraldsson
Ljósbrá Baldursdóttir
Brynjólfur Gestsson
Meistarastiganefnd:
Erla Sigurjónsdóttir, formaður
Birkir Jónsson
Sverrir Ármannsson
Laga- og keppnisreglunefnd:
Anton Haraldsson, formaður
Sveinn Rúnar Eiríksson
Jón Sigurbjörnsson
Pétur Guðjónsson
Kristján Kristjánsson
Minningarsjóður Alfreðs Alfreðssonar:
Einar Jónsson, formaður
Guðmundur Ágústsson
Stefanía Skarphéðinsdóttir
|
4. Síðumúli 37.
Bygginganefnd (Stefanía og Sigtryggur) gaf skýrslu um störf
nefndarinnar.
Umræða og skiptar skoðanir um hvort leyfa eigi reykingar í húsinu
eða ekki. Samþykkt að ræða stækkun fyrirhugaðs reykingaklefa við
arkitektinn, einnig að athuga hvort hægt sé að stækka pall á
neyðarútgangi.
Einnig rætt um tilhögun veitingasölu, hvort sjálfsalar verði teknir
inn eða hvort hægt verði að reka veitingagsölu með svipuðu sniði og
hingað til. Engin ákvörðun tekin.
Fundi slitið kl. 18:45
|