14. mars 2001
Stjórnarfundur BSÍ 14. mars 2001
Mættir á fundinn: Guðmundur, Stefanía, Sigtryggur,
Anton, Erla, Ljósbrá og Elín.
| 1. Skýrsla framkvæmdastjóra.
a. Tap á Bridshátið ca 1. milljón. orsakir: fleiri gestir en
vanalega og mikil hækkun dollara (verðlaun) og auglýsingatekjur
hafa minnkað mjög mikið. Athuga á næsta fundi hækkun gjaldskrár og
athuga þá hækkun gjalda á Bridshátíð líka (20%?) |
| 2. Húsnæðismál. Forseti skýrði frá stöðu í húsnæðismálum og fékk leyfi til að
gefa Frelsinu takmarkaðan tímafrest til að standa við kauptilboð.
Tveir aðrir aðilar hafa áhuga og mun forseti gefa Eignarmiðlun
söluumboð í 1 viku til að kanna áhuga annars aðilans. |
| 3. Landsliðsmál. Guðmundur Páll er búinn að velja 3 pör í landsliðið. Þau eru:
Þorlákur Jónsson - Matthías Þorvaldsson, Magnús Eiður Magnússon -
Þröstur Ingimarsson og Jón Baldursson - Karl Sigurhjartarson sem
koma inn í staðinn fyrir Aðalstein og Sverri, en Aðalsteinn baðst
undan vegna persónulegra aðstæðna. |
| 4. Mótanefnd - undanþágur.
Mótanefnd lagði fram tillögur að breytingu dagsetningar á
Íslandsmóti í tvímenning og verður það lagt fyrir til samþykktar á
næsta fundi. Kynntar nýjar vinnureglur sem nefndin samþykkti nýlega
og afgreiðslur undanþágubeiðna skv. nýju reglunum. |
| 5. Önnur mál. Engin |
