14. desember 2000
Stjórnarfundur BSÍ 14. desember 2000
Mættir á fundinn: Guðmundur Ágústsson, Erla
Sigurjónsdóttir, Elín Jóhannsdóttir, Anton Haraldsson, Sigtryggur
Sigurðsson og Kristján Örn Kristjánsson.
1. Fundargerð síðasta fundar.
Samþykkt. |
2. Skýrsla forseta. Guðmundur gaf skýrslu þar sem Stefanía var á fundi í Danmörku
vegna vinnu við nýja meistarastigaforritið. |
3. Kvennalandslið. Niðurstaða nefndar, sem skipuð var á síðasta fundi: Ef ákvörðun
verður tekin um að senda ekki kvennalandslið á EM næsta sumar,
verði unnið markvisst að kvennalandsliðsmálum. Lagt er til að
skipuð nefnd sem vinnur að undirbúningi kvennalandsliðs, svo hægt
verði að senda vel þjálfað lið á NM 2002 og EM 2003. |
4. Önnur mál. Anton skýrði frá því að NM yngri spilara 2001 væri á sama tíma
og EM, sem er mjög bagalegt. Ákveðið að gera athugasemd við Svía
vegna þessa. |
5. Gjaldskrá silfurstiga.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar . |