Ársþing 15. október 2000
52. ársþing Bridgesambands Íslands 15. október 2000
Mættir á fundinn:
1. 1.-2. Þingsetning. Kosning
fundarstjóra, fundarritara og kjörbréfanefndar Forseti sambandsins , Guðmundur Ágústsson, setti þingið um kl. 10.15. Hann gerði
tillögu um Sigtrygg Jónsson sem fundarstjóra, Þórð Sigfússon sem
fundarritara og í kjörbréfanefnd þau Sigtrygg Sigurðsson, Ragnheiði
Haraldsdóttur og Kristján Örn Kristjánsson. Var tillagan samþykkt
og fundi frestað meðan kjörbréfanefnd lyki störfum. |
2. Kjörbréf úrskurðuð. Eftir athugun kjörbréfanefndar og úrskurð fundarstjóra um að
einstakir þingfulltrúar gætu farið með fleiri en tvö atkvæði varð
niðurstaðan eftirfarandi: |
3. Kosning
uppstillingarnefndar Í uppstillingarnefnd voru kosnir Kristján Kristjánsson,
Brynjólfur Gestsson og Ólafur A. Jónsson. |
4. Skýrsla stjórnar. Forseti flutti skýrslu stjórnar. Rakti hann fyrst tilraunir til
að selja húseignina, sem væri óneitanlega of dýr í rekstri; vart
undir milljón á mánuði. Þrátt fyrir talsverðar umleitanir hefur
ekki enn tekist að selja, en lágmarsverð stjórnar er 80 m.kr. miðað
við staðgreiðslu. Forseti sagði frá þrautagöngu á fund þingmanna og
menntamála-ráðherra, en fjárstyrkur hins opinbera hefur lækkað úr 8
m.kr., þegar mest var, í 3 m.kr. "Það býður næstu stjórnar að
jagast við Alþingi" sagði hann. Þá ræddi hann m.a um þátttöku í
alþjóðamótum og taldi ljóst, að Íslendingar væru aftur á leið inn í
hóp hinna sterkustu þjóða. Gat hann þess, að spilarar á síðasta
Ólympíumóti yrðu verðlaunaðir með bónusgreiðslu fyrir góða
frammistöðu. Hugmynd hafði komið fram um að ráða erindreka til að
sjá um almennt kynningar-starf í skólum og víðar, og var í því
skyni reynd óhefðbundin fjáröflun meðal fyrirtækja, en hún skilaði
mjög litlu. Loks minntist forseti á deilu sveita Boga
Sigurbjörnssonar og Roche í bikarkeppninni. Læra þyrfti af
mistökum, sem í því máli urðu og "bridgehreyfingin er í vörn og
hefur annað betra við kraftana að gera en að eyða þeim í innbyrðis
átök" voru lokaorð hans. |
5. Skýrslur formanna
fastanefnda. Enginn fulltrúi meistarastiganefndar var á þinginu, en Stefanía
upplýsti, að tölvuforrit það sem notað hefur verið við
stigaskráningu væri gjörsamlega gengið sér til húðar; von væri á
nýju, fullkomnu frá Danmörku og yrði það væntanlega komið í gagnið
um áramót. Þorlákur Jónsson, form. mótanefndar, sagði nefndina ekki
hafa haldið fund í þrjú ár. Hann fengi yfirleitt málin til
meðferðar og afgreiddi þau langflest sjálfur, en hringdi þó
einstöku sinnum í Jón Baldursson. Þriðji nefndarmaðurinn hefði
undanfarin ár varla vitað af sinni nefndarsetu. |
6. Reikningar lagðir fram.
Stefanía rakti í stuttu máli niðurstöður reikninga BSÍ, sem eru
óvenju-slæmar þetta árið. Aðalástæðurnar eru talsverður samdráttur
í félagsgjöldum, verulega minni opinberir styrkir og ekki síst
kostnaður af þaki yfir göngugötu í Mjódd, sem endanlega féll á
sambandið í dómi Hæstaréttar í sumar. Enginn kvaddi sér hljóðs um
reikningana, og voru þeir samþ. með öllum greiddum atkvæðum. |
7. Lagabreytingar. Anton kynnti tillögur laga- og keppnisreglunefndar, m.a. ákvæði
um að nefndir taki mið af almennum stjórnsýslulögum. Forseti
áréttaði nauðsyn þess; nefndi bæði vanhæfi og andmælarétt. Hann
útskýrði einnig að úrskurðum dómnefndar yrði ekki skotið til
áfrýjunarnefndar, því að til þess væri einfaldlega ekki tími, enda
væri dómnefnd í raun æðra dómstigið í sínum málum, en keppnisstjóri
hið lægra. Tillögur laganefndar komu nú til afgreiðslu; fyrst um
breytingu á 5.grein. Orðalagsbreytingin "Mikilsháttar" samþykkt með
flestum atkvæðum. Niðurlagsorðum 5.greinar var breytt úr " … sem
kemur til kasta …" í " …sem komi til kasta …" og greinin síðan
samþykkt með þorra atkvæða. Breytingartillaga við 7.grein samþykkt
óbreytt með þorra atkvæða. Tillögu nefndarinnar um 15.grein var
breytt að tilhlutan Kristjáns Kristjánssonar úr "Nefndin skiptir
með sér verkum" í "Stjórn skipar formann og varaformann." Tillagan
svo breytt var síðan samþykkt með þorra atkvæða. |
8. Kosning áfrýjunarnefndar.
Björgvin Þorsteinsson |
9. Kosning löggilts
endurskoðanda. Guðlaugur R. Jóhannsson |
10. Kosning skoðunarmanna.
Hallgrímur Hallgrímsson og Páll Bergsson |
11. Ákvörðun árgjalds. Tillaga kom fram frá stjórn um að hækka árgjald úr kr. 75 í kr.
100 frá næstu áramótum. Dálitlar umræður urðu, og var tillagan
samþykkt eftir endurtekna atkvæðagreiðslu með 14 atkvæðum gegn
13. |
12. Önnur mál. Forseti skýrði frá ferð sinni og framkvæmdastjóra til Ítalíu á
málþing á vegum Evrópu-sambandsins. Þar kom m.a. fram, að
bridgeíþróttin er á leið inn á vetrarólympíuleikana, a.m.k. sem
sýningaríþrótt. Kemur það væntanlega til framkvæmda árið 2006, er
leikarnir verða á Ítalíu. Hann sagði einnig frá skemmtilegri
heimsókn í lítinn ítalskan bridgeklúbb. |