3. október 2000
Stjórnarfundur BSÍ 03. október 2000
Mættir á fundinn: Guðmundur Ágústsson, Þorlákur
Jónsson, Ísak Örn Sigurðsson, Sigtryggur Sigurðsson, Erla
Sigurjónsdóttir, Ólafur Steinason, Anton Haraldsson og Stefanía
Skarphéðinsdóttir.
1. Skýrsla framkvæmdastjóra.
Næsta Evrópumót í sveitakeppni Opinn flokkur, Kvenna flokkur og
(H)eldri spilarar ásamt tvímenningi kvenna, verður haldið á
Tenerife, Kanaríeyjum 16. - 30 júní 2001. Lögð fram til kynningar
ný lög EBL. Fjármál sambandsins eru mjög erfið í augnablikinu.
Forsetinn upplýsti að í nýútkomnu fjárlagafrumvarpi væri aðeins
gert ráð fyrir þremur milljónum í styrk sem eru mikil vonbrigði, en
reynt verður til þrautar að hækka þessa upphæð. |
2. Fundargerðir. Fundargerðir 24. ágúst og 13. sept. samþykktar. |
3. Ársþing BSÍ 15.okt.
|
4. Landslið. Skýrslur fyrirliða landsliðanna þriggja lagðar fram. Stjórnin
þakkar Guðmundi Páli Arnarsyni, Kristjáni Blöndal og Sveini Rúnari
Eiríkssyni góð og óeigingjörn störf . |
5. Önnur mál Komið hefur í ljós villa í skráningu butler á síðasta
kjördæmamóti. Fyrsta og annað sæti skiptir um eigendur og voru
réttir butler-kóngar Bogi Sigurbjörnsson og Birkir Jónsson frá Bf.
Siglufjarðar. Réttar upplýsingar verða a.m.k. settar í
ársskýrsluna. |