9. desember 1998
Stjórnarfundur BSÍ 09. desember 1998
Mættir á fundinn: Kristján Kristjánsson, Þorlákur
Jónsson, Ragnar Magnússon, Ísak Örn Sigurðsson, Ólafur Steinason,
Sigtryggur Sigurðsson, Ljósbrá Baldursdóttir, Guðmundur Ágústsson
og Stefanía Skarphéðinsdóttir sem ritaði fundargerð
1. Fundargerð. 1. Fundargerð síðasta fundar lögð fram. Búið var að senda
fundargerðina til allra stjórnarmanna, ásamt svarbréfi Kristjáns.
Sigtryggur telur að þær sem skrifuðu undir bréfið séu að mótmæla
aðferðinni sem við var höfð en ekki hverjar voru valdar.
Fundargerðin samþykkt. |
2. Skýrsla framkvæmdastjóra
Meistarastigaskráin er loksins tilbúin og verður send út á
morgun. Formlegt boð til bikarmeistaranna 1998 á Rottneros-mótið er
komið. Spilað verður 23. - 25. Apríl 1999. BSÍ styrkir ferðina eins
og undanfarin ár. Um síðustu helgi var fyrsta barnabridgemót á
Íslandi haldið. 62 börn mættu og tókst mótið í alla staði mjög vel
undir leiðsögn Ljósbrá en Sveinn Rúnar var keppnisstjóri. |
3. Norðurlandamót yngri spilara
1999. Undirbúningsnefndin leggur til að mótið verði spilað í Reykjavík
3. - 10. Júlí. Gist á Hótel Cabin og keyptur matur "Hjá Dóra".
Spilað verður í Þönglabakkanum. Samþykkt samhljóða. |
4. Unglingalandslið. Ljósbrá hefur rætt við nokkra spilara og hugsanlega þjálfara
fyrir liðið. Tíminn er orðinn mjög naumur. Rætt verður betur við
líklega þjálfara og ákvörðun tekin af framkvæmdaráðinu á næstu
dögum. |
5. Landstvímenningurinn 140 pör tóku þátt í mótinu á 9 stöðum víðsvegar um landið, þar
af spiluðu 70 pör "á netinu". |
6. Húsnæðismál Kristjáni finnst full ástæða til að skoða möguleikana á að selja
húsnæðið og óskar eftir heimild stjórnarinnar til að skoða þetta
nánar. Þönglabakkinn er eftirsóttur staður núna á
fasteignamarkaðinum. Samþykkt. Ákveðið að skipa Kristján, Guðmund
og Ragnar í nefnd til að fylgja málinu eftir og afla
upplýsinga. |
7. Bréf frá Jakob Kristinssyni
Jakob leggur fram áætlun að bridgenámskeiðum fyrir konur.
Stjórnin tekur jákvætt undir þessar hugmyndir en vill fá nákvæmari
upplýsingar og kostnaðaráætlun, áður en endanleg ákvörðun er
tekin. |
8. Undirbúningsnefnd v/landsliðskeppni
í opnum flokki í feb. 1999. Óskað er eftir að tillögur nefndarinnar liggi fyrir á næsta fundi 12.jan. |