4. nóvember 1998
Stjórnarfundur BSÍ 04. nóvember 1998
Mættir á fundinn: Ljósbrá Baldursdóttir, Guðmundur
Ágústsson, Sigtryggur Sigurðsson, Ólafur Steinason, Ísak Örn
Sigurðsson, Erla Sigurjónsdóttir, Þorlákur Jónsson, Þorsteinn Berg,
Ragnar Magnússon, Kristján Kristjánsson og Stefanía
Skarphéðinsdóttir
1. Skýrsla framkvæmdarstjóra.
Stefanía lagði fram drög að fjárhagsáætlun næsta starfsárs. Gert
er ráð fyrir tekjur kr. 26.150.000 og rekstrarafgangi kr. 700.000.
Þá sagði hún frá undirbúningi Norðurlandamóts yngri spilara á næsta
ári. Ákveðið að skipa Ljósbrá Baldursdóttir, Ólafur Steinason og
Sævar Þorbjörnsson í undirbúningsnefnd vegna NM. |
2. Verkaskipting stjórnar
Ragnar Magnússon varaforseti, Ólafur Steinason gjaldkeri,
Þorsteinn Berg ritari og meðstjórnendur Ljósbrá, Sigtryggur og
Þorlákur. Framkvæmdaráð: Kristján Kristjánsson, Ragnar Magnússon,
Þorlákur Jónsson. |
3. Skipun fastanefnda. Mótanefnd: Þorlákur Jónsson formaður, Jón Baldursson, Guðmundur
Ágústsson. Varamenn: Guðjón Bragason, Anton Haraldsson, Ísak Örn
Sigurðsson. Laga- og keppnisreglnanefnd: Guðmundur Ágústsson
formaður, Ísak Örn Sigurðsson, Sigtryggur Sigurðsson. Faglegur
ráðgjafi: Hjalti Elíasson. Meistarastiganefnd: Þorsteinn Berg
formaður, Ísak Örn Sigurðsson, Sveinn Rúnar Eiríksson. Dómnefnd:
Guðmundur Ágústsson formaður, aðrir tilnefndir á næsta fundi. |
4. Landsliðsmál a) Ráðning þjálfara kvennalandsliðs. Kristján skýrði frá
hugmyndum Einars Jónssonar um kostnað vegna þjálfunar og
undirbúnings kvennalandsliðs. Þorlákur sagði að þær áætlanir sem
Einar hefði lagt fram væru metnaðarfullar og framkvæmdaráðinu
litist vel á þær. Einar ætlar að velja þrjú pör og æfingar verða að
meðaltali 1 ½ sinnum í viku til áramóta en tvisvar í viku fram að
Evrópumóti auk einkaþjálfunar. Ákveðið að semja við Einar á þessum
grundvelli. |
5. Önnur mál Tekin fyrir bréf dags. 30.okt. 1998 og 2.nóv. 1998 frá Stefáni Garðarssyni til stjórnar BSÍ varðandi ákvörðun mótanefndar að synja umsókn Stefáns um leyfi til að spila við varamann í úrslitum Íslandsmóts í tvímenningi. Stjórn BSÍ telur sér ekki heimilt samkvæmt lögum BSÍ, að breyta gjörðum mótanefndar, en vísar til að lögin verða endurskoðuð fyrir næsta ársþing. |