9. september 1998
Stjórnarfundur BSÍ 09. september 1998
Mættir á fundinn: Kristján Krisjtánsson, Ragnar
Magnússon, Erla Sigurjónsdóttir, Ísak Örn Sigurðsson, Ólafur
Steinason, Sigtryggur Sigurðsson, Þorlákur Jónsson, Ljósbrá
Baldursdóttir, Jón Sigurbjörnsson, Þorsteinn Bergsson og Stefanía
Skarphéðinsdóttir.
1. Skýrsla framkvæmdarstjóra.
Fundur í NBU. Stefanía greindi frá fundi í Norræna Bridgesambandinu sem fram
fór í Noregi í sumar í tengslum við Norðurlandamótið. Jan Aasen
forseti Norska Bridgesambandins var kjörin nýr forseti NBU, en Jens
Kruuse óskaði ekki eftir endurkjöri. Svíar sjá um landstvímenningin
20.nóv. nk. Vegna keppnisfyrirkomulags verður að takmarka
heildarfjölda við 500 pör, þar af fær Ísland 50 pör. Nú er bridge
samþykkt sem Olympíugrein og verður með á vetrarleikunum árið 2006
í fyrsta skipti. |
2. Bikarkeppnin 1998 a) Úrslitin. |
3. Veitingasala Stefaníu falið að ganga til samninga við Jóhannes O.
Bjarnason. |
4. Keppnisreglugerð Ólafur Steinason lagði fram breytingatillögur þar til skipaðrar
nefndar. Miklar umræður urðu um breytingarnar. Stjórnin samþykkir
að leggja fyrir ársþing BSÍ 1998 breytingartillögur á
keppnisreglugerðum fyrir Íslandsmót í sveitakeppni og Bikarkeppni
BSÍ. |
5. Landsliðsmál Þar sem orðið var mjög áliðið var umræðum frestað. |