30. september 1998
Stjórnarfundur BSÍ 30. september 1998
Mættir á fundinn: Ljósbrá Baldursdóttir, Þorlákur
Jónsson, Sigtryggur Sigurðsson, Ólafur Steinason, Ísak Örn
Sigurðsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ragnar Magnússon, Þorsteinn Berg,
Kristján Kristjánsson og Stefanía Skarphéðinsdóttir
1. Skýrsla framkvæmdarstjóra.
Keypt hefur verið notuð ljósritunarvél. Borist hefur boð á
bridgehátíð í Ísrael 28.jan.- 6.feb. 1999, keppnisgjöld og hótel
greidd. Töluvert er spurt um leigu á sölum til að halda afmæli og
aðrar veislur. Stjórnin er hlynnt því að leigja út sali til
mannfagnaða. Stefanía óskar eftir að leigður verði posi sem er
orðinn algjör nauðsyn, samþykkt. |
2. Landsliðsmál Stefanía skýrði frá fundi um landsliðsmál, sem Ragnar
Hermannsson stjórnaði. Á fundinn voru boðaðir landsliðsmenn síðustu
10 ára. Stjórnin samþykkir tillögur Ragnars um mótaröð fyrir
sterkari spilara, einskonar meistaraflokk. Samþykkt að BSÍ greiði
laun keppnisstjóra og spilagjöf, en keppnisgjöld fara til
verðlauna. Ákveðið að semja við Einar Jónsson um þjálfun
kvennalandsliðs. Eitt af fyrstu verkum nýrrar stjórnar verður að
finna nýjan þjálfarar fyrir yngri spilarana, en Jónas P. Erlingsson
hefur tilkynnt að hann sé hættur sem þjálfari. Stjórnin þakkar
Jónasi óeigingjörn og mjög árangursrík störf fyrir
unglingalandsliðið. |
3. Reyklaus aðstaða Tóbaksreykur veldur mörgum miklum óþægindum í húsnæði okkar, þar
sem reykurinn berst um alla sali. Ákveðið að útbúa reykaðstöðu í
austurenda matsalar. Kristján talar við arkitektinn og fær
kostnaðaráætlun. |
4. Ársþing Farið yfir breytingartillögur að keppnisreglugerðum, sem lagðar
verða fram á þinginu. |