4. febrúar 1998
Stjórnarfundur BSÍ 04. febrúar 1998
Mættir á fundinn: Ragnar Magnússon, Sigtryggur
Sigurðsson, Þorlákur Jónsson, Ólafur Steinason, Þorsteinn Berg,
Ljósbrá Baldursdóttir og Stefanía Skarphéðinsdóttir. Ragnar
stjórnaði fundi í fjarveru forseta.
1. Bridgehátíð. Skráning gengur vel bæði í sveitakeppni og tvímenning.
Undirbúningur að öðru leyti hefðbundinn og gengur samkvæmt
áætlun. |
2. Afmælismót. Rætt hvort gefa ætti út afmælisrit. Framkvæmdaráði falið að taka
ákvörðun. Ragnar skýrði frá undirbúningi afmælismótsins, sem hann
og Bragi Hauksson bera þungann af. |
3. Landsliðsmál. Sigtryggur skýrði frá nefndarstörfum. Nefndin vill fá ákvörðun stjórnar um eftirfarandi: Fyrirkomulag og tímasetning. Á keppnin að vera opin. Ákvörðun um keppnisgjöld. Kosin landsliðsnefnd: Þorlákur Jónsson formaður, Þorsteinn Berg og Sveinn Rúnar Eiríksson. Nefndin gerir tillögu á næsta fundi um skipulag og tímasetningu. Ákveðið að innheimta ekki keppnisgjöld. |