7. október 1997
Stjórnarfundur BSÍ 07. október 1997
Mættir á fundinn: Kristján Kristjánsson, Guðmundur
Páll Arnarson, Sveinn Rúnar Eiríksson, Ragnar Magnússon, Ljósbrá
Baldursdóttir, Sigrún Pétursdóttir og Stefanía
Skarphéðinsdóttir.
1. Skýrsla framkvæmdastjóra
Ársreikningurinn yfirfarinn og útskýrður. Reksturinn á síðasta
ári var þungur, enda bæði Ólympíu- og Evrópumót á árinu. Halli af
reglulegri starfsemi fyrir afskriftir og vexti er kr. 366.000,
vaxtakostnaður kr. 3,2 millj. og afskriftir kr. 2,0 millj. Tap
ársins er því samtals kr. 5,6 millj. Búið er að leigja út einn sal
í vetur til námskeiðahalds að deginum, leigutekjur kr.
500.000. |
2. Ársþing Undirbúningur þingsins ræddur. Laganefndin lýkur störfum allra
næstu daga. |
3. Bridgehátíð Uppkast að samningi við Flugleiðir lagt fyrir. Elínu
Bjarnadóttur veitt heimild til að skrifa undir samninginn f.h. BSÍ.
Athugað verði hvort möguleiki er á að BSÍ geti séð um veitingasölu
að hluta. |
4. Föstudagsspilamennska
B.R. hefur boðið kr. 12.000 í húsaleigu fyrir föstudagskvöldin. Samþykkt að ganga að tilboðinu og leigja föstudagana til B.R. út keppnistímabilið 1997-8. |