6. mars 1997
Stjórnarfundur BSÍ 06. mars 1997
Mættir á fundinn: Guðmundur Páll Arnarsson,
Kristján Kristjánsson, Jón Sigurbjörnsson, Þorsteinn Berg, Ljósbrá
Baldursdóttir og Jakob Kristinsson.
1. Bridgehátíð Jakob skírði frá framkvæmd og taldi að flestir hefðu verið
ánægðir og lítið hefði verið um kærur. Fjárhagslegt uppgjör liggur
ekki fyrir. Ákveðið að fá Jakob, Ljósbrá og Guðmund Pál til að
leggja fram tillögur að næstu Bridgehátið. |
2. Sumarbridge 1997 Ákveðið að bjóða út sumarbridge 1997. Jakobi falið að gera
útboðsgögn. |
3. Húsnæðismál Teppaland gat ekki útvegað teppið sem pantað hafði verið á nýja
salinn en lánaði annað og bauð það á um 300 þús. kr lægra verði.
Fyrirtækið er þó tilbúið að setja nýja teppið á þegar það kemur án
útgjalda. |
4. Fjáröflunarmót í apríl og
maí Rætt um að halda helgarmót í apríl eða maí í tilefni af
lokafrágangi húsnæðis BSÍ að Þönglabakka 1. |
5. Íslandsmót í sveitakeppni
Ekki var gott útlit með að allir keppnendur kæmust á
Íslandsmótið. Ákveðið að mótinu yrði ekki frestað. |
6. Landsliðsmál Farið yfir stöðuna. Björn Eysteinsson gengur frá ferðatilhögun
vegna Evrópumóts í samvinnu við framkvæmdastjóra. |
7. Úrvinnsla gamalla gagna og
mynda Búið er að fullvinna töluvert af myndum sem Þórður Sigfússon
hefur safnað og Kolbrún Kristjánsdóttir hefur unnið. |
8. Kjördæmamót 1997 Jón Sigurbjörnsson gengur frá þessu í samráði við Jakob. |