17. janúar 1997
Stjórnarfundur BSÍ 17. janúar 1997
Mættir á fundinn:
1. Ferð yngrispilara á mót í Hollandi
fyrr í mánuðinum. Jónas P Erlingsson fyrirliði mætti og gerði grein fyrir
ferðinni. Hann sagði okkar spilara hafa staðið sig vel eftir
aðstæðum því mikið var um veikindi hjá liðsmönnum meðan á mótinu
stóð. Hann sagði að mótið væri mjög vel skipulagt og einnig sterkt
og því keppikefli fyrir BSÍ að senda lið á þetta mót á hverju ári
ef mögulegt væri. Hann lagði fram öll gögn um úrslit og fleira og
er hægt að nálgast þau á skrifstofunni. Ákveðið að Jónas haldi
áfram með yngrispilarana og velji lið á NM í samráði við Ragnar
Hermannsson og Jón Baldursson sem fyrst. Æfingar geta þá hafist
fyrir alvöru í samvinnu við Björn fyrirliða opna liðsins, Ragnar
fyrirliða kvennaliðsins og Einar Jónsson bridgekennara. |
2. Bridgehátíð. Jakob fór yfir stöðu mála með gesti og fleira, en síðan urðu
umræður um kerfi sem leyfa ætti í mótinu. Niðurstaðan varð sú að
útbúið yrði eitt a4 blað þar sem lýst er helstu "fjöldjöflum" og
"múltíum" og búin til einföld vörn við því. Þetta geta keppendur
haft á borðinu hjá sér. |
3. Húsnæðismál.
Framkvæmdastjórn veitt umboð til þess að semja við Ármannsfell um að hefja
framkvæmdir eins fljótt og hægt er, ef tilboð þeirra yrði
ásættanlegt fyrir BSÍ. BSÍ á 50 ára afmæli 1998. Því sé gott að
allar breytingar verði þá úr sögunni. Forseti taldi að hagkvæmast
væri fyrir BSÍ að þetta yrði klárað í einni lotu. Framkvæmdastjóra
falið að ganga frá láni í Landsbankanum að upphæð kr.
6.000.000. |
4. Útbreiðslumál. Beiðni um stryrk frá BSÍ vegna þátttöku þeirra í sterku boðsmóti
í Danmörku. Stefna BSÍ að styrkja ekki spilara á mót þar sem BSÍ
hefur ekkert um þátttöku þeirra að segja. Í þessu tilfelli fengu
þeir félagar boð Jakobi falið að senda svarbréf og benda þeim á að
ssækja um styrk hjá sínum bridgefélögum. |