12. júní 1996
Stjórnarfundur BSÍ 12. júní 1996
Mættir á fundinn: Kristján Kristjánsson, Guðmundur
Sv. Hermannsson, Guðmundur Páll Arnarson, Ólafur Steinason, Ragnar
Magnússon, Stefanía Skarphéðinsdóttir og Þorsteinn Berg.
1. Ársþing BSÍ. Lögum samkvæmt ber að halda þing BSÍ þriðja sunnudag í október
ár hvert, eða 20. okt. nk. |
2. Mótaskrá 1996-97. * Ragnar Magnússon lagði fram tillögu mótanefndar að
tímasetningu móta á næsta keppnisári. Verður skráin send félögum
til kynningar á næstu dögum. |
3. Göngugata í Mjódd. A&P lögmenn hafa tekið að sér "innheimtu" á meintri skuld
BSÍ vegna yfirbyggingar göngugötunnar í Mjódd. Á fundinum var lagt
fram bréf frá A&P lögmönnum, þar sem skorað er á BSÍ að greiða
meinta skuld, ella megi búast við málsókn. Björgvin Þorsteinsson,
lögfræðingur BSÍ í þessu máli, mun svara erindi A&P
lögmanna. |
4. Kjördæmakeppnin. Kjördæmakeppnin er ung keppni og enn í mótum. Fram hafa komið
óskir um að spila mótið í einni deild og einfalda reglur um
þátttökurétt. Var Ólafi Steinasyni falið að gera tillögu að nýrri
reglugerð um mótið. |
5. Heimasíða á netinu. Lagt var fram bréf frá Steingrími Gauti Péturssyni,
kerfisfræðingi, þar sem hann skorar á BSÍ að koma upp heimasíðu á
veraldarvefnum (Internetinu). Þar gætu verið ýmsar upplýsingar, sem
koma bridsmönnum að góðu gagni: úrslit móta, myndir, auglýsingar um
mót, mótaskrá, tölvupóstur, þátttökutilkynningar í mót og magt
fleira. Sambandið á þegar tölvubúnað sem dugir og er kostnaður við
uppsetningu í lágmarki. Var samþykkt að fela Steingrími að koma
síðunni upp hið fyrsta. |