13. mars 1996
Stjórnarfundur BSÍ 13. mars 1996
Mættir á fundinn:
1. Göngugata. Lögð fram skýrsla Björgvins Þorsteinssonar hrl. um stöðu BSÍ
vegna yfirbyggingu göngugötunnar í Mjódd. Björgvin metur það svo að
BSÍ sé í fullum rétti að neita að taka þátt í kostnaði af
framkvæmdunum. Stjórnin samþykkti að fela framkvæmdastjóra að koma
á fundi með öðrum húseigendum í Þönglabakka 1, sem fyrsta skrefi
til að ljúka þessu máli. |
2. Landsliðsmál. * Lagt fram bréf frá Birni Eysteinssyni, landsliðsfyrirliða opna
flokksins. Í bréfinu varpar Björn fram þeirri hugmynd að fá
Kanadamanninn Eric O. Kokish til landsins í ágúst nk. Auk þess að
vera spilari og bridshöfundur á heimsmælikvarða, er Kokish einn
kunnasti þjálfari heims og hefur haldið námskeið fyrir landslið
þekktra bridsþjóða. Björn telur að 5-6 daga námskeið Kokish geti
nýst landsliðum í öllum flokkum. Var samþykkt að fela Birni að
ganga til samninga við Kokish. |
3. Íslandsmót. * Íslandsbanki, sem styrkt hefur Íslandsmótin sl. 5 ár, ákvað að
hætta stuðningi sínum í bili. |