13. desember 1995
Stjórnarfundur BSÍ 13. desember 1995
Mættir á fundinn: Kristján Kristjánsson forseti,
Ásgrímur Sigurbjörnsson, Guðmundur Páll Arnarson, Guðmundur Sveinn
Hermannsson, Ólafur Steinason, Ragnar Magnússon, Sigrún
Pétursdóttir, Stefanía Skarphéðinsdóttir, Þorsteinn Berg; einnig
Elín Bjarnadóttir fráfarandi framkvæmdastjóri og nýráðinn
framkvæmdastjóri sambandsins, Sólveig Kristjánsdóttir.
1. Guðmundar Kr. Sigurðssonar
minnst. Stjórnin vottaði minningu Guðmundur Kr. Sigurðssonar virðingu
með því að rísa úr sætum. |
2. Fræðslumál. Lesið var bréf frá Einari Guðmundssyni, þar sem hann segir sig
úr stjórn BSÍ og afsalar sér öðrum trúnarðarstörfum fyrir
sambandið. Stefanía Skarphéðinsdóttir mun taka að sér starf
gjaldkera, en Jakob Kristinsson kemur í stað Einars inn í
meistarastiganefnd. |
3. Bridgehátíð 1996. Samþykkt var að fela mótanefnd að ganga endanlega frá
keppnisfyrirkomulagi tvímennings Bridgehátíðar og ákveða fjölda
spila. |
4. Landsliðsmál. Opinn flokkur: Forseti greindi frá því að Björn Eysteinsson hefði verið ráðinn
landsliðsfyrirliði opna flokksins frá 1. janúar 1996 fram yfir
Evrópumót 1997. |
5. Ráðning framkvæmdastjóra.
Kristján Kristjánsson greindi frá því að gengið hafi verið frá
ráðningarsamningi við nýjan framkvæmdastjóra BSÍ, Sólveigu
Kristjánsdóttur. Var Sólveig boðin velkomin til starfa. |
6. Varðveisla gamalla
bridsgagna. Samþykkt var tillaga um að stofna bóka- og ljósmyndasafn, sem
fengi með tímanum aðstöðu í hinum óinnréttaða enda Þönglabakka.
Fyrstu verkefni verða (1) að safna saman öllu efni sem ritað hefur
verið um brids á íslensku, (2) safna ljósmyndum, sem sýna sögu
bridsíþróttarinnar á Íslandi. (Bestu myndirnar verða síðan
stækkaðar, rammaðar inn og hengdar upp í salarkynnum sambandsins,
þar sem veggpláss er ærið.) |
7. Göngugata við Mjódd. Kröfur hafa verið settar fram á BSÍ um að taka þátt í kostnaði
vegna byggingar göngugötu í Mjóddinni. Guðmundur Sv. Hermannsson
greindi stjórninni frá málavöxtum. Björgvin Þorsteinsson hrl. hefur
fylgst með málinu fyrir hönd BSÍ og vinnur hann nú að greinargerð.
Ákvarðanir verða teknar um framhald þegar hún liggur fyrir. |
8. Önnur mál. *Samþykkt var að halda samráðsfund með stjórn Bridgefélags
Reykjavíkur, þriðjudaginn 9. janúar nk., kl. 16.30 í
Þönglabakka. |