7. desember 2004

þriðjudagur, 7. desember 2004

Stjórnarfundur BSÍ 07. desember 2004

Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Guðmundur Ólafsson, Matthías Þorvaldsson, Erla Sigurjónsdóttir, Helgi Bogason, Sveinn Rúnar Eiríksson, Einar Jónsson, Jóhann Stefánsson, Kristján Blöndal og Stefanía Skarphéðinsdóttir. Fjarverandi var Ólafur Steinason.

1. Skýrsla forseta

Kristján setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Við afgreiðslu fjárlaga fyrir 2005 var styrkur til BSÍ hækkaður í 10,5 millj. svo það er ástæða til að þakka velvilja Alþingis og vera bjartsýnn á reksturinn fyrir næsta ár.

2. Skýrsla framkvæmdastjóra

Stefanía byrjaði á að segja frá mikilli umferð á heimasíðunni, en í október og nóvembermánuði voru að meðaltali yfir 400 notendur sem heimsóttu síðuna daglega.
Guðmundur Páll er að skoða möguleika á æfingamótum fyrir landsliðið á næsta ári.
Miðvikudaginn 8.des. verður Opið hús í Síðumúlanum, þar sem nemendur Bridsskólans og yngri spilarar eru sérstaklega velkomnir og hvatti hún stjórnarmenn til að mæta.
Landstvímenningurinn er ekki orðinn svipu hjá sjón og aðeins 60 pör sem tóku þátt í honum í haust, en spilað var á 4 stöðum og greinilega kominn tími til að huga að breyttu fyrirkomulagi. T.d. spila á öðrum vikudegi og slást í hóp annarra í Evrópu eða koma á fót keppni á milli landa. Málinu vísað til mótanefndar.
Þó búið sé að bóka undankeppni Íslandsmótsins í svk. í Síðumúla 35 og 37 er verið að skoða aðra möguleika t.d. Hamrahlið. Stjórnarmenn voru sammála þvi að reyna að finna betra húsnæði.

3. Bridgehátíð 18.-21. febrúar 2005

Skipuð Bridgehátíðarnefnd: Stefanía Skarphéðinsdóttir, Ljósbrá Baldursdóttir, Sgiurður B. Þorsteinsson.
Margar fyrirspurninr hafa þegar borist erlendis frá og nokkrir þekktir spilarar þegar skráðir. George Mittelman og Ralph Katz verða í annarri boðssveitinni, og beðið eftir svari frá Zia.
Hótel Loftleiðir þola ekki fjölgun í tímenningnum og kannski orðið tímabært að skoða möguleika á að flytja mótið á Hotel Nordica.
Sveinn Rúnar ræddi möguleika á að fá sponsora fyrir gestasveitirnar.
Samþykkt að veita flokkaverðlaun í tvímenningnum, vísað til BH-nefndar.

4. Starfslýsingar

Vegna anna var enginn tilbúinn undir þessum lið, en allir lofuðu að skila af sér á næsta fundi, 11. janúar.

5. Framtíðarnefnd

Helgi sagði brýnt að vinna stefnumótun til langs tíma, ekki væri marktvisst að setja í gang verkefni án þess að huga að framtíðarmarkmiðum. Án stefnumótunar vantaði alla samfellu í starfsemina, sérstaklega þar sem mannaskipti væru tíð.
Eftir miklar umræður var ákveðið að koma "Framtíðarnefnd" á laggirnar, Helgi er tilbúinn að taka þátt í þessari vinnu og finnur formann og 3.mann fyrir næsta fund.

6. Fræðslumál

Einar hafði haft samband við nokkra einstaklinga sem höfðu komið að unglinga og fræðslustarfi BSÍ og reynt að koma á einskonar hugmyndabanka, með litlum árangri þó.
Athugasemdir um fræðslustarfið og tilllögur til úrbóta höfðu borist frá Aroni Þorfinnsyni, bridgekennara í MH. Einar sagði útbreiðslustarfið augljóslega ekki nógu mikið og lagði til að ráðinn verði starfsmaður sem sinnti fræðslu- og útbreiðslumálum, kvennalandsliði, landsliði yngri spilara.
Miklar umræður urðu um þessar tillögur, en vinna þarf að þeim samhliða stefnumótun og starfslýsingum.

Fleira ekki rætt. Fundi slitið kl. 19:20. Næsti fundur þriðjudaginn 11. janúar.



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar