Ársþing 17. október 2004

sunnudagur, 17. október 2004

Ársþing 17.okt. 2004 17. október 2004

Mættir á fundinn: Sjá neðar

1. Þingsetning

Forseti Kristján B. Snorrason setti þingið um kl. 10:15, bauð fulltrúa velkomna og minntist Þórðar Sigfússonar og Hjalta Elíassonar, sem létust á árinu og bað viðstadda að rísa úr sætum og votta þeim virðingu sína.
Forseti for yfir starfsemi ársins. Ræddi árangur landsliðanna og sagði nefnd á vegum stjórnarinnar hafa unnið góða skýrslu um kvennabridge.
Reksturinn gekk nokkuð vel á árinu og þakkaði hann sérstaklega umsjónarmönnum getraunadeildarinnar, sem skilaði ágætum afgangi.
Helsta nýjung í mótahaldi er tilkoma Deildakeppninnar sem beðið er með eftirvæntingu. Til stendur að gera úttekt á starfi sambandsins og blása til sóknar á næsta ári.
Hann tilnefndi fundarstjóra Helga Bogason, sem tók þegar við fundarstjórn og Frímann Stefánsson sem fundarritara og var það samþykkt.
Í kjörbréfanefnd voru kosnir: Ólafur A. Jónsson, Sigtryggur Sigurðsson og Guðlaugur Bessason. Gert var 15 mín. fundarhlé meðan nefndin sinnti störfum sínum.

2. Kjörbréf þingfulltrúa athuguð og úrskurðuð

Ólafur hafði orðið fyrir kjörbréfanefnd. Honum þótti fundarsókn dræm, þar sem aðeins höfðu borist kjörbréf 25 fulltrúa frá 9 félögum.
Alls mættu 16 fulltrúar sem fóru með 21 atkvæði fyrir 7 félög.

Fulltrúar voru þessir:

Bridgefélag Reykjavíkur Guðný Guðjónsdóttir 1 atkv.
Helgi Bogason 1 atkv.
Hjördís Sigurjónsdóttir 1 atkv.
Hrólfur Hjaltason 1 atkv.
Ísak Örn Sigurðsson 1 atkv.
Jón Baldursson 1 atkv.
Sigtryggur Sigurðsson 1 atkv.
Sveinn Rúnar Eiríksson 1 atkv.
Bf. Selfoss Brynjólfur Gestsson 2 atkv.
Bf. Suðurnesja Kristján Örn Kristjánsson 2 atkv.
Bf. SÁÁ Matthías Þorvaldsson 2 atkv.
Bf. Hafnarfjarðar Guðlaugur Bessason 1 atkv.
Erla Sigurjónsdóttir 1 atkv.
Bf. Akureyrar Frímann Stefánsson 2 atkv.
Bf. Barðstr. og kvenna Ólafur A. Jónsson 2 atkv.
Guðrún Jörgensen 1 atkv.
.

Að auki sátu þingið: Kristján B. Snorrason, Kristján Blöndal og Stefanía Skarphéðinsdóttir

3. Kosning uppstillinganefndar

4. Í uppstillinganefnd voru kosnir: Brynjólfur Gestsson, Jón Baldursson og
Kristján Örn Kristjánsson.

4. Skýrsla stjórnar

5. Sjá lið 1.

5. Formenn fastanefnda gefa skýrslu

Ísak Örn Sigurðsson sagði störf mótanefndar hafa verið hefðbundin.
Erla Sigurjónsdóttir mælti fyrir meistarastiganefnd.
Kristján Blöndal fyrir laga- og keppnisreglunefnd. Hann sagði frá undirbúningi Deildakeppninnar.
Engir talsmenn foru fyrir dómnefnd og áfrýjunarnefnd.

6. Reikningar lagðir fram

7. Framkvæmdastjóri kynnti reikninga sambandsins og skýrði einstaka liði.
Síðan foru fram almennar umræður um starfsemina.
Frímann ræddi um heimasíðuna, málefni yngri spilara og sagði að passa þyrfti að hengja upp skiptingu stiga að mótum loknum og stöðu í riðlum í einmenningi. Bað um betri sundurliðun stiga þ.e. aðgang að 5 ára stigum..
Helgi Bogason sagði frá breytingum á heimasíðunni, sem eru í vinnslu.
Erla þakkaði ábendingar um meistarastig.
Jón Baldursson var sammála um meistarastigin og sagði að fundagerðir mættu koma fyrr inn á heimasíðuna. Hann vildi fara varlega í að gefa frestanir á bikarleiki og fannst vont að tvískipta undanúrslitum í svk. á milli húsa.
Ólafur A. Jónsson sagði að stöðva yrði fækkun iðkenda íþróttarinnar og ekki mætti hækka keppnisgjöld. Eldri borgara hefðu ekki efni á að borga mikið. Nú yrði að taka á í fjáröflun og helst þyrfti að fá ofurfjárfesta til að fjármagna kynningarstarf.
Kristján B. Snorrason sagði að stjórn væri búin að samþykkja að senda lið yngri spilara á Norðulandamótið í Danmörku á næsta ári. Hann sagði að reynt verði að koma á samstarfi við borgaryfirvöld um t.d. aukna nýtingu húsnæðis.
Helgi Bogason upplýsti að eldri borgarar greiddu hálft keppnisgjald í B.R. Hann sagði vanta sterkan bakhjarl í fjáröflunina og næsta skref væri að fá fjáröflunarnefnd til starfa.
Guðrún Jörgensen sagðist ekki ánægð með stöðuna í kvennabridge og bað um afrit af nefndri skýrslu og sagði að auðvitað vantaði okkur aðra Bermúdaskál til að fá athygli umheimsins.
Hrólfur sagðist vilja keppni um landsliðssæti og spurði hver stæði fyrir heimasmíðuðum pörum.
Kristján B. sagði landsliðseinvald hafa fullt traust stjórnar og hann veldi sterkasta liðið sem völ væri á hverju sinni.
Frímann sagði frá námskeiði á Akureyri og að þrátt fyrir góðan undibúning og kynningu í öllum fjölmiðlum á staðnum hefði þátttaka verið léleg.
Jón B. vildi fá eldri borgara meira inn í starfsemina. Honum fannst um að gera að keppa stundum um landsliðssæti og sagði að landsliðsmenn þyrftu að leggja fram 60 - 80 tíma vinnu á mánuði.
Ólafur A. sagði að landsliðseinvaldur ætti alfarið að ráða valinu. Hann ítrekaði að við þurfum öfluga fjáröflun.
Helgi B. sagði okkur vera í varnarbaráttu og við yrðum að sýna einingu. Sum gagnrýni á landsliðsmálin væri ósanngjörn, þó hana megi ekki vanta.
Kristján B. sagði að landsliðsumræðan myndi verða ofarlega á verkefnalista stjórnar.
Ársreikningar samþykktir samhljóða.

7. Lagabreytingar

8. Engar tillögur um lagabreytingar lágu fyrir.

8. Kosningar

Eftirtaldar tillögur uppstillinganefndar voru samþykktar samhljóða:

Forseti Kristján B. Snorrason
Í aðalstjórn til 2 ára: Guðmundur Ólafsson
Helgi Bogason
Matthías Þorvaldsson
Í aðalstjórn til 1 árs: Ólafur Steinason
Í varastjórn til 1 árs: Jóhann Stefánsson
Einar Jónsson
Sveinn Rúnar Eiríksson

Úr stjórn gengu Kristján Már Gunnarsson, Ísak Örn Sigurðsson og Una Árnadóttir

Áfrýjunarnefnd: Guðjón Bragason, formaður
Björgvin Þorsteinsson, varaformaður
Esther Jakobsdóttir
Guðmundur Ágústsson
Guðmundur Sv. Hermannsson
Kristján Kristjánsson
Loftur Þór Pétursson

Löggiltur endurskoðandi: Guðlaugur R. Jóhannsson

Skoðunarmenn reikninga: Hallgrímur Hallgrímsson
Páll Bergsson
Til vara: Bogi Sigurbjörnsson
Jónas Elíasson

9. Ákvörðun árgjalds

13. Ólafur A. vildi lækkun árgjalds.
Sveinn Rúnar lagði til að greitt yrði helmingur fyrir eldri borgara og yngri spilara.
Eftir nokkuð líflegar umræður var eftirfarandi samþykkt:
"Ársþingið framselur til stjórnar ákvörðun árgjalds. Árgjaldið verði þó að hámarki kr. 100 með hugsanlega lækkun til eldri borgara og yngri spilara í huga. "

10. Önnur mál

14. a) Reglugerð fyrir veitingu heiðursmekja og Heiðursmerkjanefnd BSÍ.
Eftir nokkrar umræður var reglugerðin samþykkt samhljóða og Brynjólfur Gestsson kosinn í Heiðursmerkjanefnd.
b) Ólafur A. sagði tilefni til að vera búin að hengja upp myndir af öllum forsetum BSÍ á 60 ára afmælinu eftir 4 ár.
c) Jón B. spurði um fræðslumálin. Matthías sagðist vilja sjá þau í umsjón skrifstofunnar.

Forseti þakkaði góða og málefnalega umræðu og sleit þingi um kl. 14:00



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar