12. október 2004

þriðjudagur, 12. október 2004

Stjórnarfundur 12. október 2004

Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Kristján Már Gunnarsson, Erla Sigurjónsdóttir, Kristján Blöndal, Ísak Örn Sigurðsson, Guðmundur Ólafsson Helgi Bogason, Stefanía Skarphéðinsdóttir og Una Árnadóttir. Jóhann Stefánsson og Matthías Þorvaldsson voru fjarverandi.

1. Skýrsla forseta

Kristján B. Snorrason setti fundinn og minntist Hjalta Elíassonar og framlags hans til bridgeíþróttarinnar í gegnum tíðina. Nefndi að Guðmundur Sv. Hermannson hefði fundið gamalt viðtal sem tekið var við Hjalta og sem hugsanlega mætti setja í tölvutækt form og birta á heimasíðunni.

Stutt er í ársþing BSÍ og ekki komið framboð til forseta. Kristján B. Snorrason er tilbúinn að sitja ár til viðbótar verði farið fram á það og fái hann stuðning til þess.

2. Ársreikningur 2003 - 4

Ársreikningur 2003-4 lagður fram. Stefanía skýrði ársreikninginn og svaraði fyrirspurnum. Stóru tölurnar eru vegna Evrópumótsins og þakviðgerðar. Á móti komu óvæntar auknar tekjur af getraunasölu og er umsjónarmönnum getraunardeildarinnar sérstaklega þökkuð góð og gjöful störf.

Unnið er að því að skuldbreyta lánum til að njóta þeirra vaxtalækkana sem orðið hafa undanfarið.

3. Önnur mál

Helgi Bogason lagði fram drög að reglugerð fyrir heiðursmerki og Heiðursmerkjanefnd BSÍ. Ákveðið að leggja hana fram á ársþinginu.

Að lokum sagði forsetinn frá því að hann hefði farið til Akureyrar á afmælismótið. Það hefði verið glæsilegt mót og sérstaklega vel að því staðið.

Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 18:20



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar