9. mars 2004

þriðjudagur, 9. mars 2004

Stjórnarfundur 09. mars 2004

Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Matthías Þorvaldsson, Kristján Már Gunnarsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ísak Örn Sigurðsson, Kristján Blöndal, Jóhann Stefánsson, Guðmundur Ólafsson, Una Árnadóttir, Helgi Bogason og Stefanía Skarphéðinsdóttir.

1. Skýrsla forseta

Kristján þakkaði gjöf frá Búnaðarbankanum, hillur á skrifstofu. Spilasponsor er í vinnslu.

2. Skýrsla framkvæmdastjóra

Bráðabirgðauppgjör fyrir Bridgehátíð liggur fyrir og er hagnaður kr. 250.000.
Heimsóknarmet var slegið á heimasíðu BSÍ meðan á Bridgehátíð stóð.
Vinna við þak gengur skv. áætlun, þó bætist við áætlaðan kostnað u.þ.b. kr. 100.000.
Kostnaður vegna boðsmóts til Yokohama varð heldur minni en áætlað var.

3. Bréf frá Bs. Reykjaness (BRU)

Tekið fyrir brot á reglugerð vegna fjölda spilaðra spila í svæðamóti í svk. Reglugerðin kveður ekki á um hvernig taka skuli á þessu atriði, en stjórnin lítur þetta mjög alvarlegum augum og vill tryggja að slíkt gerist ekki aftur.
Lagt til að laga- og keppnisreglunefnd móti viðurlög vegna slíkra mála á næsta þingi.
Eftirfarandi bókun samþykkt:
Stjórn BSÍ harmar framkvæmd Reykjanessmóts 2004 í sveitakeppni.
Mótið er sannanlega ólöglegt samkvæmt keppnisreglugerð Íslandsmóta.
Nú liggur fyrir áskorun til BSÍ, frá stjórn BRU og þeim sveitum er spiluðu um réttinn til Íslandsmóts, um að mótið gildi.
Ákvörðun stjórnar BSÍ er sú, að mótið verði látið gilda. Hins vegar er málið það alvarlegt, að rétt þykir að BRU missi eina sveit af svæðakvóta fyrir Íslandsmótið árið 2005.

4. Meistarastig. Breyting á úthlutun stiga í Íslandsmótum í svk. og tvímenningi

Erla lagði fram tillögur um breytingar á úthlutun stiga. Umræða um málið og tillögurnar samþykktar.

5. Heimasíðan.

Helgi Bogason og Ómar Olgeirsson hafa skoðað heimasíðuna og finnst hún standa fyllilega samanburð við aðrar sambærilegar síður a.m.k. á Norðurlöndunum.
Helgi telur að það efni, sem flestir spilarar þurfi að sækja, sé á síðunni. En það er hægt að skipuleggja hana betur, svo það verði einfaldara að rata um hana og hafa efni á augljósum stað. Markmiðið er að hafa efni fyrir alla sem hafa áhuga á bridge, hvort sem þeir spila eða ekki.
Umræða um ýmislegt sem gott væri að hafa á síðunni, t.d. eyðublöð og fl.

6. Íslandsmótið í sveitakeppni

Íslandsmótið í sveitakeppni verður spilað á tveimur stöðum, þ.e. hjá okkur og í næsta húsi, Síðumúla 35. Þar er ágætis aðstaða. Keppnisstjórar verða Björgvin Már Kristinsson og Eiríkur Hjaltason. Úrslitin verða síðan spiluð á Hótel Loftleiðum. Umræða um hvort halda eigi hliðarmót og ætlar Stefanía að skipuleggja það.

7. Önnur mál

20 mars verður haldið framhaldsskólamót. Ákveðið að kaupa eða fá gefins farandbikara vegna mótsins.

Matthías upplýsti að bridgefélag SÁÁ hefur hætt starfsemi fram á næsta haust.

Matthías upplýsti þau góðu tíðindi að Verslunarskólinn og Iðnskólinn hafa sýnt áhuga á því að hefja bridgekennslu og eru að skoða málið.

Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 18:20



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar