30. mars 2004

þriðjudagur, 30. mars 2004

Stjórnarfundur 30. mars 2004

Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Matthías Þorvaldsson, Kristján Már Gunnarsson, Ísak Örn Sigurðsson, Kristján Blöndal, Jóhann Stefánsson, Guðmundur Ólafsson, Una Árnadóttir og Stefanía Skarphéðinsdóttir. Erla Sigurjónsdóttir og Helgi Bogason voru fjarverandi.

1. Skýrsla forseta

Forsetinn ræddi um nauðsyn þess að reyna að vekja áhuga á bridge og vinna í PR-málum, eins og hefur verið gert í skákinni. Það mætti e.t.v. reyna að koma bridge inn í sjónvarpið

2. Skýrsla framkvæmdastjóra

Stefanía sagði frá því að hollenskur bridgblaðamaður hefði áhuga á að markaðssetja Bridgehátíði í Hollandi. Umræða um málið og vaknaði m.a. upp sú spurning hvort það væri æskilegt að fá marga útlendinga inn á mótið, því eins og staðan er í dag þá er tvímenningurinn mjög eftirsóttur af innlendum spilurum og óvíst hvort hægt sé að taka á móti fleiri pörum.
Nýr hugbúnaður hjá textavarpinu verður líklega tilbúinn fyrir úrslitin og fáum við þá þrjá síður, 326, 327 og 328.
BSÍ býður upp á opið hús, sérstaklega fyrir nýlið, miðvikudaginn 21.apríl.
Kjördæmamótið 22. - 23. maí verður haldið á Sauðárkróki.
Þakviðgerð er lokið, beðið eftir lokauppgjöri.

3. Sumarbridge

Ákveðið að bjóða út sumarbridge eins og undanfarin ár og verða útboðin opnuð 27. apríl n.k. Ekki var ákveðið á fundinum hvort veitingasalan væri með í útboðinu. Framkvæmdastjórn fékk heimild stjórnar til þess að ákveða og ganga frá því máli.

4. Íslandsmót í svk. - Undanúrslit og úrslit

Eins og komið hefur fram voru undanúrslitin í Íslandsmótinu spiluð á tveimur stöðum. Það hafa ekki borist til stjórnarinnar né skrifstofunnar neinar kvartanir varðandi þetta fyrirkomulag. Ákveðið var að stefna á þetta fyrirkomulag aftur árið 2005. Rætt var um Mónumótið sem verður haldið samhliða úrslitum Íslandsmótsins sem spiluð verða um Páskana á Loftleiðum. Kristján Blöndal, hefur fengið 30 Mónu páskaegg í verðlaun og ákveður hvernig eggjunum verður ráðstafað.

5. NM 2005

Ákveðið að þjálfa og senda út sveit yngri spilara á Norðurlandamótið 2005.

6. Fræðslumálin

Skipuð var nefnd til þess að halda utan um fræðslumál yngri spilara og er hún skipuð Ljósbrá Baldursdóttur, Jóhanni Stefánssyni og Antoni Haraldssyni, ef hann gefur kost á sér.

7. Önnur mál

Rætt um menntun keppnisstjóra, því það er augljóst að það þarf að þjálfa upp nýja keppnisstjóra. Jóhann Stefánsson ætlar að koma með tillögur.

Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 18:15



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar