9. desember 2003

þriðjudagur, 9. desember 2003

Stjórnarfundur 09. desember 2003

Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Kristján Már Gunnarsson, Helgi Bogason, Erla Sigurjónsdóttir, Kristján Blöndal, Matthías Þorvaldsson, Jóhann Stefánsson, Guðmundur Ólafsson og Stefanía Skarphéðinsdóttir

1. Skýrsla forseta

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Hann sagðist nýkominn frá bridgemóti á Madeira. Þar hefðu verið veitt verðlaun fyrir efstu pör í öllum flokkum og kannski hugmynd að gera það t.d. á Bridgehátíð.
Kristján ræddi einnig hvort ekki væri þörf á að geta veitt heiðursmerki BSÍ. Fundarmenn sammála um að skoða það nánar.

2. Skýrsla framkvæmdastjóra

Opið hús 30.nóv. var velheppnað, og mættu 22 pör.
BSÍ hefur borist stór bókagjöf frá Jakob Möller. Stjórnin þakkar Jakobi þessa höfðinglegu gjöf og verður skoðað hvernig hún nýtist sem best.
Mímir og Námsflokkar Hafnarfjarðar hyggjast bjóða upp á bridgenámskeið eftir áramót og er aukið framboð af námskeiðum til almennings fagnaðarefni.
Vonir standa til þess að nýr hugbúnaður fyrir textavarpið verði tilbúinn á næstu dögum og verður hann prufukeyrður hjá BSÍ.
Fjögur tilboð bárust í viðgerð á þaki. Samþykkt að taka lægsta tilboði kr. 4,8 millj., okkar hlutur u.þ.b. kr. 1,4 millj.
Undirbúningur fyrir Bridgehátíð gengur ágætlega. Beðið eftir svari frá Zia, en ítölsk sveit (Lanzarotti-Buratti) búnir að þiggja boð svo og Mark Feldman-Sharon Osberg. Að auki hafa þrjár sterkar sveitir frá Bandaríkjunum, Danmörku og Bretlandi boðað komu sína.

3. Kvennalandslið

Forseti þakkar Kristjáni Blöndal góða undirbúningsvinnu. Eftir nokkrar umræður var ákveðið að halda sérstakan fund um málið þriðjudaginn 16.des. kl. 17:30 og verður þá tekin ákvörðun um hvort senda á lið á Evrópumótið 2004.

4. Heimasíðan

Helgi Bogason sagði síðuna stóra og efnismikla og því væri hún nokkuð þung í vöfum. Hann sagðist ætla að funda með forritaranum um hugsanlegar breytingar og taka málið aftur upp í janúar.

5. Félagakerfið

Kristján Már sagði sitt félag á Selfossi nota kerfið með góðum árangri. Vissulega vantar í það Monrad Barometer o.fl. en það sem er í kerfinu virkar vel og er einfalt í notkun. Hann sagðist telja best að leggja áherslu á að fjölga félögum sem nota kerfið, áður en verður farið í að auka það og bæta.

Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 19:00



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar