3. maí 2000

miðvikudagur, 3. maí 2000

Stjórnarfundur BSÍ 03. maí 2000

Mættir á fundinn: Guðmundur Ágústsson, Þorlákur Jónsson, Ólafur Steinason, Ljósbrá Baldursdóttir, Sigtryggur Sigurðsson, Sveinbjörn Eyjólfsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ísak Örn Sigurðsson, Páll Þórsson og Stefanía Skarphéðinsdóttir

1. Skýrsla framkvæmdastjóra.

Erindi BSÍ til Reykjavíkurborgar um niðurfellingu fasteignagjalda var hafnað. Í fyrra fékst helmings niðurfelling og eykur þetta kostnað BSÍ um kr. 400.000. Uppgjör vegna Bridgehátíðar liggur fyrir, mótið er nokkurn veginn á sléttu. Bréf frá formanni meistarastiganefndar hjá Sænska Bridgesambandinu, tillögur um breytingar á stigagjöf.. Ísak Örn kynnir sér málið. Boð frá Þýska Bridgesambandinu, ísl. landsliðinu boðið á Bonn-cup, því miður leyfir fjárhagur okkar ekki að þiggja boðið.

2. Sumarbridge.

Aðeins eitt tilboð barst frá Sveini Rúnar Eiríkssyni. Tilboðið er án tilskilinnar tryggingar og barst eftir að frestur rann út. Tilboðið er töluvert lægra en ásættanlegt þykir. Framkvæmdaráði falið að ræða við Svein Rúnar eða leita annarra lausna

3. Landsliðsmál.

Þorlákur sagði frá undirbúningi opna flokksins. Kristján Blöndal hefur tekið að sér fyrirliðastarfið í kvennaflokknum og Erla fræddi fundinn um undirbúninginn. Auk Erlu Sigurjónsdóttur, Drafnar Guðmundsdóttur, Bryndísar Þorsteinsdóttur og Guðrúnar Jóhannesdóttur hefur fyrirliðinn valið Hjördísi Sigurjónsdóttur og Ragnheiði Nielsen í liðið. Páll sagði frá undirbúningi unglingalandsliðsins fyrir Evrópumótið, en erfitt er um vik þar sem ekkert paranna búa í sama kjördæmi.

4. Bréf.

A) Stefán Björgvin Sigvaldason sækir um styrk vegna ferðar á bridgemót í Svíþjóð. Erindinu hafnað, ekki eru fordæmi fyrir styrkveitingum sem þessari til einstaklinga.

B) Umsókn frá 5 af 6 spilurum kvennalandsliðsins. Óskað er eftir að BSÍ skrái kvennasveit á Olympíumótið í Hollandi og greiði keppnisgjöldin, en spilararnir færu á eigin vegum. Samþykkt var að hafna erindinu með vísan til þess að ákvörðun hafi verið tekin um að senda ekki kvennalið á Olympíumótið. Þá vísar stjórnin til þess að skráningarfrestur rann út 15.apríl sl. og liggja verði fyrir staðfest yfirlýsing um að liðið ásamt fyrirliða ætli að fara á mótið.



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar