5. maí 1999
miðvikudagur, 5. maí 1999
Stjórnarfundur BSÍ 05. maí 1999
Mættir á fundinn: Þorlákur Jónsson, Sigtryggur
Sigurðsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ragnar Magnússon, Þorsteinn Berg,
Ljósbrá Baldursdóttir, Guðmundur Ágústsson, Ólafur Steinason,
Stefanía Skarphéðinsdóttir og Kristján Kristjánsson.
1. Skýrsla framkvæmdarstjóra.
Stefanía upplýsti að deila BSÍ og húsfélagsins í Mjódd yrði
tekin til aðalmeðferðar 18.maí, og að dómur félli um miðjan júní.
Undirbúningur kjördæmamótsins sem verðar haldið á Akureyri gengur
vel. Ekki hefur gengið að fá niðurfelld fasteignagjöld á
Þönglabakka 1, en unnið er enn í málinu.
|
2. Sumarbridge
Ljósbrá víkur af fundi. Þrjú tilboð bárust í sumarbridge, frá
eftirtöldum: Sveinn Rúnar Eiríksson 1.555.000,-
Mattías Þorvaldsson 1.435.000,-
Jón Baldursson 1.207.000,-
|
3. Rottneros
Kristján sagði frá ferð sinni á mót bikarmeistara
Norðurlandanna,þar sem spiluðu Íslensku bikarmeistararnir, þeir
Ásmundur Pálsson, Aðalsteinn Jörgensen, Guðlaugur R.Jóhannsson og
Örn. Kristján sat þar sameiginlegan fund forseta bridgesambanda
Norðurlandanna
|
4. NM 2000
Stefanía upplýsti stöðu mála í undirbúningi, beðið er eftir
tilboðum í gistingu og spilasal frá Hótel Örk , Hótelinu á
Kirkjubæjarklaustri, lykilhóteli Cabin, Og Grand hótel
Reykjavík.
|
5. Bikarkeppni BSÍ 1999
Dregið verður í bikarkeppnina á kjördæmamótinu á Akureyri
23.maí.
|
6. Húsnæðismál
Kristján, Guðmundur og Þorlákur, sem var falið á síðasta
stjórnarfundi að skoða húsnæði við Gylfaflöt sögðu stjórnarmönnum
frá. Málin rædd , og fóru síðan flestir stjórnarmenn og skoðuðu
þetta húsnæði.
|