4. mars 1999

fimmtudagur, 4. mars 1999

Stjórnarfundur BSÍ 04. mars 1999

Mættir á fundinn: Ragnar Magnússon, Guðmundur Ágústsson, Sigtryggur Sigurðsson, Ólafur Steinason, Ísak Örn Sigurðsson, Ljósbrá Baldursdóttir, Þorlákur Jónsson, Þorsteinn Berg, Kristján Kristjánsson og Stefanía Skarphéðinsdóttir.

1. Skýrsla framkvæmdarstjóra.

Bráðabirgðauppgjör vegna Bridgehátíðar sýnir að líklegt tap á mótinu er kr. 100.000, en auglýsingatekjur hafa minnkað töluvert frá því sem var. Bernard Shenkin skrifar um mótið í maíblaði ameríska bridgesambandsins.Skýrt var frá fundi með Björgvini Þorsteinssyni hrl. vegna göngugötunnar.

2. Íslandsmót í sveitakeppni, úrslit

Ragnar Önundarson frá MasterCard kemur og setur mótið.

3. NM-yngri spilara 19.-25. júlí 1999.

Undirbúningur samkvæmt áætlun.

4. Fimmtudags-spilamennska

Stjórn BR hefur tilnefnt Sigtrygg og Friðjón til að ræða við BSÍ um fimmtudagana. Stjórn BSÍ felur Stefaníu og Ísaki að ræða við fulltrúa BR.

5. Húsnæðismál

Kristján og Guðmundur hafa kannað markaðinn og upplýstu fundarmenn um stöðuna.



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar