13. janúar 1999

miðvikudagur, 13. janúar 1999

Stjórnarfundur BSÍ 13. janúar 1999

Mættir á fundinn: Ljósbrá Baldursdóttir, Sigtryggur Sigurðsson, Guðmundur Ágústsson, Ísak Örn Sigurðsson, Þorlákur Jónsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ragnar Magnússon, Kristján Kristjánsson, Þorsteinn Berg og Stefanía Skarphéðinsdóttir.

1. Skýrsla framkvæmdarstjóra.

Ísak Örn lagði fram skýrslu vegna ferðarinnar. Kristján lýsti ánægju sinni með ferð unglingalandsliðsins á boðsmótið í Hollandi og færði fyrirliða og spilurunum bestu þakkir fyrir frammistöðuna, en sveitin endaði í 6. Sæti af 24 þjóðum. Liðið var þannig skipað: Fyrirliði Ísak Örn Sigurðsson, Sigurbjörn Haraldsson, Guðmundur Halldórsson, Frímann Stefánsson og Páll Þórsson. Ísak lýsti ánægju sinni með ferðina og árangurinn og sagði að spilararnir hefðu verið landi og þjóð til sóma.

2. NM - Yngri spilarar 1999

Mótið verður haldið 10.-16.júlí í Reykjavík

3. Landsliðkeppni.

Tillaga undirbúningsnefndar samþykkt. Sigtryggur telur að betra hefði verið að spila undankeppnina í pörum með sveitakeppnisútreikningi.

4. Bridgehátíð

Ítalska landsliðið, Alan Sontag, Kyle Larsen og Christian Mari hafa staðfest þátttöku. Beðið er eftir staðfestingu frá Zia o.fl.

5. Dómnefnd BSÍ 1998-1999

Guðmundur Ágústsson, formaður
Anton Haraldsson
Ásgeir Ásbjörnsson
Erla Sigurjónsdóttir
Guðjón Bragason
Gylfi Baldursson
Hermann Lárusson
Jakob Kristinsson
Jónas P. Erlingsson

6. Námskeiðahald

Lagt fram bréf frá Jakobi Kristinssyni varðandi námskeiðahald. Kristjáni, Þorláki og Þorsteini falið að ræða við Jakob.

7. Bréf

Lagt fram bréf undirritað af Jónínu Pálsdóttur f.h. "bridgekvenna".



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar