10. júní 1998
miðvikudagur, 10. júní 1998
Stjórnarfundur BSÍ 10. júní 1998
Mættir á fundinn: Kristján Kristjánsson, Ljósbrá
Baldursdóttir, Ólafur Steinason, Sigtryggur Sigurðsson, Jón
Sigurbjörnsson, Ísak Sigurðsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ragnar
Magnússon, Þorlákur Jónsson, Þorsteinn Berg og Stefanía
Skarphéðinsdóttir.
1. Skýrsla framkvæmdarstjóra.
Fram kom á aðalfundi Svæðisfélagsins sem Stefanía og Björgvin
Þorsteinsson sátu, að búið er að stefna BSÍ vegna greiðslu á
hlutdeild í yfirbyggingu göngugötunnar. Stefán Vilhjálmsson
formaður Bf. Akureyrar hefur tilkynnt að Bs. N-Eystra væri tilbúið
að halda kjördæmamótið 1999 á Akureyri. Mjög áhugavert boð hefur
borist á mót í Dubai.
|
2. Styrkveitingar á mót
erlendis
Ragnar Magnússon lagði fram tillögu í fimm liðum. Eftirfarandi
var samþykkt:
1. Leitast verður við að veita styrki á öll Evrópu- og
heimsmeistaramót. Miða skal við að BSÍ greiði keppnisgjöld þeirra
sem styrk hljóta, þó aðeins fyrir eitt mót á hverjum stað. Þannig
getur t.d. verið um þrjú mót að ræða (í blönduðum flokki,
tvímenningi og sveitakeppni) og fær þá hver spilari styrk í eitt
mót.
2. Styrkupphæð skal að öllu jöfnu vera u.þ.b. 10 - 15 þúsund krónur
á spilara og reiknað er með að BSÍ greiði út styrki allt að 300.000
kr. á ári (miðað við verðlag í júní 1998)
3. Öllum er heimilt að sækja um styrk og skal hvert par eða hver
einstakur spilari sækja um skriflega. Hver umsókn er afgreidd
sérstaklega.
4. Reglur þessar skulu vera til leiðbeiningar og sæta endurskoðun
reglulega.
|
3. Landsliðsmál
Einar Jónsson sér um undirbúning kvennaliðsins. Stefanía fer sem
spilandi fyrirliði til Noregs.
|
4. Íslandsmót í
sveitakeppni-svæðamót
Ákveðið að skipa nefnd til að útbúa keppnisreglugerð, sem verður
lögð fyrir þingið í haust. Nefndina skipa: Ólafur Steinason,
formaður, Ísak Örn og Jón Sigurbjörnsson.
|
5. Norðurlandamót yngri spilara
1999
Rætt um keppnisstað. Stefanía kannar hugsanlegan spilastað fyrir
næsta fund.
|