7. apríl 1998

þriðjudagur, 7. apríl 1998

Stjórnarfundur BSÍ 07. apríl 1998

Mættir á fundinn: Kristján Kristjánsson, Ljósbrá Baldursdóttir, Ólafur Steinason, Sigtryggur Sigurðsson, Jón Sigurbjörnsson, Ísak Sigurðsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ragnar Magnússon, Þorlákur Jónsson, Þorsteinn Berg og Stefanía Skarphéðinsdóttir.

1. Skýrsla framkvæmdarstjóra.

Stefanía skýrði frá að mála ætti uppganginn í Þönglabakka 1 fyrir afmælið og skiptist kostnaður á milli eigenda hússins. Fjárhagurinn hefur lagast og búið að greiða allar skuldir sem voru í vanskilum. Mikil þörf er á að endurnýja tækjakost, tölvur, ljósritunarvél og símakerfi. Lagt fram afrit af bréfi sem Jón Steinar Gunnlaugsson samdi fyrir stjórnina og var sent Bs. Vesturlands vegna undankeppni Íslandsmóts í sveitakeppni. Mikil umræða fór fram um málið og afgreiðslu þess og lýsti Jón Sigurbjörnsson óánægju sinni með afgreiðsluna.

2. Afmæli - afmælismót.

Ragnar skýrði frá undirbúningi og taldi upp þá, sem boðið hefur verið í mótið en flestir eru uppteknir. Urðu miklar umræður um hvort fresta ætti hátíðinni til hausts eða halda mótið á auglýstum tíma. Samþykkt að halda mótið 23.-26.apríl en draga úr umfangi þess ef fáir erlendir gestir mæta. Reynt verður áfram að útvega styrktaraðila. Ísak dreifði grein sem hann hafði skrifað með stuttu ágripi frá stofnun BSÍ.

3. Bridgehátíð 1999.

Ljósbrá og Stefanía verða fulltrúar BSÍ í næstu Bridgehátíðarnefnd

4. Sumarbridge.

Ákveðið að auglýsa útboð á sumarbridge, eins og sl. sumar. Tilboðin verða opnuð á næsta fundi 6.maí.

5. Mótaskrá 1998-9.

Mótanefnd falið að leggja fram uppkast að forsíðu mótaskrár á næsta fundi.



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar