4. febrúar 1998

miðvikudagur, 4. febrúar 1998

Stjórnarfundur BSÍ 04. febrúar 1998

Mættir á fundinn: Ragnar Magnússon, Sigtryggur Sigurðsson, Þorlákur Jónsson, Ólafur Steinason, Þorsteinn Berg, Ljósbrá Baldursdóttir og Stefanía Skarphéðinsdóttir. Ragnar stjórnaði fundi í fjarveru forseta.

1. Bridgehátíð.

Skráning gengur vel bæði í sveitakeppni og tvímenning. Undirbúningur að öðru leyti hefðbundinn og gengur samkvæmt áætlun.

2. Afmælismót.

Rætt hvort gefa ætti út afmælisrit. Framkvæmdaráði falið að taka ákvörðun. Ragnar skýrði frá undirbúningi afmælismótsins, sem hann og Bragi Hauksson bera þungann af.

3. Landsliðsmál.

Sigtryggur skýrði frá nefndarstörfum. Nefndin vill fá ákvörðun stjórnar um eftirfarandi: Fyrirkomulag og tímasetning. Á keppnin að vera opin. Ákvörðun um keppnisgjöld. Kosin landsliðsnefnd: Þorlákur Jónsson formaður, Þorsteinn Berg og Sveinn Rúnar Eiríksson. Nefndin gerir tillögu á næsta fundi um skipulag og tímasetningu. Ákveðið að innheimta ekki keppnisgjöld.



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar