14. janúar 1998

miðvikudagur, 14. janúar 1998

Stjórnarfundur BSÍ 14. janúar 1998

Mættir á fundinn: Kristján Kristjánsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ísak Örn Sigurðsson, Ragnar Magnússon, Sigtryggur Sigurðsson, Þorlákur Jónsson, Ljósbrá Baldursdóttir, Þorsteinn Berg, Ólafur Steinason og Stefanía Skarphéðinsdóttir.

1. Skýrsla framkvæmdarstjóra.

Stefanía upplýsti að enn væru ógreidd keppnisgjöld frá Íslandsmótum 1997, en taldi að allt fengist greitt að lokum. Stjórnin samþykkir að aðeins skuldlausir fái að taka þátt í Íslandsmótum og öðrum mótum á vegum BSÍ. BSÍ hefur verið í áskrift hjá Miðlun, sem safnar öllum skrifum um bridge og setur í bók. Vegna fjárhagserfiðleika var árið 1997 ekki keypt. Samþykkt að gerast áskrifendur aftur, kostnaður kr. 11.400 á mánuði. BSÍ hefur verið boðið að senda landsliðið á bridgehátíðir í Ísrael, Indónesíu og Indlandi, ekki hefur verið hægt að þiggja boðin vegna kostnaðar.

2. Bridgehátíð.

Þorlákur upplýsti að von væri á þremur gestasveitum, frá Danmörku, Noregi og Bandaríkjunum. Útlit er fyrir að færri komi frá Bandaríkjunum á vegum Goren ferðaskrifstofunnar en á síðasta ári. Annars er undirbúningur með hefðbundnum hætti.

3. Generali mótið.

Jóni Baldurssyni er boðið á heimsmeistaramótið í einmenningi 1998, sem haldið verður á Korsíku. Samþykkt að styrkja hann til fararinnar.

4. Söfnun bridgesögunnar.

Þórði Sigfússyni falið að vinna frekar að söfnun gamalla bridgegreina. Ákveðið að veita kr. 125.000 til verksins.

5. Siðareglur.

Ísak Örn lagði fram uppkast að siðareglum fyrir bridgespilara.

6. Landsliðsmál.

Ákveðið að spila um landsliðssæti í opnum flokki og kvennaflokki vegna Norðurlandamóts. Sigtryggur og Sveinn Rúnar Eiríksson útbúa reglugerð og sjá um nánari útfærslu.



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar