7. ágúst 1997

fimmtudagur, 7. ágúst 1997

Stjórnarfundur BSÍ 07. ágúst 1997

Mættir á fundinn: Kristján Kristjánsson, Stefanía Skarphéðinsdóttir, Sigrún Pétursdóttir, Ólafur Steinason, Þorsteinn Berg, Ljósbrá Baldursdóttir, Ragnar Magnússon, Guðmundur Páll Arnarson og Jakob Kristinsson.

1. Framkvæmdastjóraskipti.

Ákveðið að ráða Stefaníu Skarphéðinsdóttur í stað Jakobs Kristinssonar, sem lætur nú af störfum. Þar sem Stefanía býr úti á landi, en flytur til borgarinnar fljótlega, mun hún ráða starfsmann með sér í hlutastarf til að byrja með. Stefanía mun ekki gefa kost á sér í stjórn á næsta þingi BSÍ.

2. Fjármál BSÍ.

Tekjur BSÍ eru minni á yfirstandandi rekstrarári en því síðasta, en útgjöld á árinu eru mikil, sérstaklega vegna Ólympíu- og Evrópumóta. Reiknað er með þriggja milljóna kr. rekstrarhalla. Ákveðið að taka lán hjá Landsbanka Íslands kr. 4.000.000 til að borga lausaskuldir.

3. Veitingasala veturinn 1997-98.

Auglýst verði eftir tilboðum í reksturinn. Tilboð opnuð á næsta stjórnarfundi 10.sept. nk.

4. Tvö bréf frá Bridgefélagi Reykjavíkur.

a) Óskað er eftir samráði og samstarfi um ráðstöfun styrks Reykjavíkurborgar til B.R. Ákveðið að bjóða B.R. að tilnefna fulltrúa í áður skipaða nefnd, til að endurskoða og útfæra útbreiðslu bridge meðal barna og unglinga. Nú skipa nefndina Guðmundur Páll Arnarson, Ljósbrá Baldursdóttir og Sveinn Rúnar Eiríksson. b) B.R. óskar eftir að leigja spilaaðstöðu þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga í vetur. B.R. leigir þriðjudaga og miðvikudaga eins og sl. vetur. Töluverðar umræður urðu um föstudagana og ljóst að BSÍ getur ekki látið tekjur af þeim af hendi eins og er. Tveir úr stjórn BSÍ ræða við stjórn B.R. um hvaða hugmyndir eru uppi varðandi útfærslu á föstudagsspilamennsku.

5. Bikarkeppni úrslit.

Leigður verður búnaður fyrir sýningatöflu og reynt að laða að sem flesta áhorfendur, ákveðið að innheimta ekki aðgangseyri.

6. Íslandsmót í tvímenningi.

Mótið verður haldið 11.-12.okt. og úrslit spiluð 1.-2.nóv.

7. Fundur með menntamálaráðherra vegna 50 ára afmælis BSÍ á næsta ári.

Kristján og Guðmundur Páll fóru á fund ráðherra, til að óska eftir styrk til að halda alþjóðlegt bridgemót á afmælisárinu. Ráðherra tók þeim vel og bíður eftir nánari útfærslu.

8. Mótaskrá 1997-98.

Drög lögð fram.

9. Tryggingar.

Ákveðið að færa tryggingar sambandsins til Tryggingar hf, sem nýverið færði okkur að gjöf 1800 götuð spil.



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar