9. apríl 1997

miðvikudagur, 9. apríl 1997

Stjórnarfundur BSÍ 09. apríl 1997

Mættir á fundinn: Guðmundur Páll Arnarsson, Kristján Kristjánsson, Þorsteinn Berg, Ragnar Magnússon, Ólafur Steinarsson, Sveinn Rúnar Eiríksson og Jakob Kristinsson.

1. Frágangur húsnæðis og uppgjör

Endanlegt uppgjör liggur ekki fyrir en ljóst að vinna við rafmagn og málningu verður meiri en áætlað var.

2. Bridgehátið uppgjör

Hagnaður af bridgehátið var um 1 milljón krónur.

3. Kjördæmamót

Rammareglugerð vegna mótsins er tilbúin og fer í póst 10. apríl. Dregið verður um töfluröð helgina 12. - 13. apríl.

4. EM 1997 / S

veitakeppni báðir flokkar Ferðatilhögun liggur fyrir. Lagt verður af stað 13. júní og komið heim 30. júní. Sex spila í hvorri sveit, alls 14 manns með fyrirliðum.

5. Sumarbridge 1997

Jakob lagði fram drög að útboðsgögnum, stjórnin ræddi málið og lagði til að auglýst yrði eftir tilboðum.

6. Bóksala

Jakob upplýsti að mistök hefðu orðið í samskiptum við erlendu útgáfuna. Nú væri búið að greiða hluta af bókarpöntun og hún því væntanleg.

7. Úrvinnsla gamalla gagna og mynda

Ákveðið að Þórður Sigfússon ynni áfram að verkinu.

8. Alheimstvímenningur í júní 1997

Rætt hvort spila ætti bæði á föstudagskvöldi og laugardegi, ákveðið að gera það.

9. Bikarkeppni 1997

Ákveðið að auglýsa bikarkeppnina og draga um sveitir helgina sem kjördæmakeppni fer fram.

10. Fjáröflunarmót

Talið er heppilegt að halda það helgina 3. - 4. maí. Jakobi falið að gera tillögur um framkvæmd. Önnur mál Bréf frá sveit Landsbréfa, sigurvegara í bikarkeppninni 1996 um styrk vegna þáttöku í bikarkeppni norðurlanda í Rottneros. Samþykkt að styrkja sveitina um sömu upphæð og síðast þegar sveit var styrkt á Rottneros



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar