14. febrúar 1996

miðvikudagur, 14. febrúar 1996

Stjórnarfundur BSÍ 14. febrúar 1996

Mættir á fundinn: Kristján Kristjánsson forseti, Guðmundur Sv. Hermannsson, Guðmundur Páll Arnarson, Ragnar Magnússon, Stefanía Skarphéðinsdóttir, Þorsteinn Berg og Sólveig Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri.

1. Landsliðskeppni í kvennaflokki.

Samþykkt var að efna til landsliðskeppni í kvennaflokki vegna Norðurlandamóts í vor.

Spilað verður tvær helgar í apríl:

13.-14. apríl: 16 para butler-tvímenningur.

20.-21. apríl: Einvígi tveggja sveita.

Fyrri helgina verður spilaður 16 para butler-tvímenningur. Tvö efstu pörin úr þeirri keppni öðlast rétt til að velja annað par úr mótinu sem sveitarfélaga, en síðan munu þessar tvær sveitir heyja einvígi síðari helgina um réttinn til að spila fyrir Íslands hönd á NL.

Nánari útfærsla landsliðskeppninnar er í höndum Guðm. Sv. Hermannssonar.

Landsliðssjóður BSÍ.

Kristján Kristjánsson lagði fram tillögu um stofnun sérstaks landsliðssjóðs BSÍ og var hún samþykkt. Aðalsteinn Jónsson frá Eskifirði hefur gefið vilyrði fyrir 100 þús. kr. stofnframlagi.

Hugmynd Kristjáns er að leita til hins almenna félaga BSÍ og fara fram á 250 kr. framlag af greiðslukorti í 22 mánuði, eða út árið 1997.

2. 2. Göngugata í Mjódd.

Lagt fram bréf frá "Svæðisfélagi við göngugötu í Mjódd", dagsett 15. janúar sl.

Björgvin Þorsteinsson hrl. fer með málið fyrir hönd BSÍ og var ákveðið að biðja hann um greinargerð um stöðu málsins fyrir næsta stjórnarfund.

3. Bridgehátíð.

Samkvæmt kostnaðaráætlun má gera ráð fyrir nokkrum tekjum af Bridgehátíð í þetta sinn.

4. Fræðslumál.

Gengið hefur verið frá fjármögnun unglinganámskeiðs, en nákvæm tímaáætlun verður ákveðin síðar.

5. Önnur mál.
Styrkur frá Bridgefélagi Reykjavíkur.

Í bréfi frá stjórn BR, dagsettu 25. janúar, kemur eftirfarandi fram:

*BR lánar BSÍ kr. 500 þúsund í einn mánuð. Ef Reykjavíkurborg veitir BR styrk sem nemur þeirri upphæð, mun BR líta á þessar 500 þúsund kr. sem greiðslu árlegs styrks BR til BSÍ og ekki fara fram á endurgreiðslu.

* BR veitir landsliðunum í unglingaflokki, kvennaflokki og opnum flokki styrk að upphæð 100 þúsund fyrir hvern flokk, samtals kr. 300 þúsund.

* BR leggur fram kr. 50 þúsund til unglingafræðslu, sem er sameiginlegt verkefni BR, BSÍ, Bridsskólans og Samvinnuferða/Landsýnar.

Boð frá Finnlandi.

Finnska bridssambandið býður fulltrúa BSÍ (með maka) og einu íslensku pari að taka þátt í hátíðahöldum vegna 60 ára afmælis sambandsins helgina 25.-26. maí.

HM í einmenningi.

Jóni Baldurssyni hefur verið boðið að verja HM-titil sinn í einmenningi, en næsta mót fer fram í París dagana 1.-4. maí. Heimssambandið borgar uppihald, en stjórn BSÍ samþykkti að veita Jóni fararstyrk.

Nöfn sveitarforingja.

Vegna aukins áhuga fyrirtækja að kosta bridssveitir til keppni, taldi Stefanía Skarphéðinsdóttir illmögulegt að átta sig á fréttaflutningi af mótum. Hún taldi nauðsynlegt að nöfn sveitaforingja kæmu fram innan sviga á eftir nafni viðkomandi fyrirtækis.



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar