8. nóvember 1995
miðvikudagur, 8. nóvember 1995
Stjórnarfundur BSÍ 08. nóvember 1995
Mættir á fundinn: Kristján Kristjánsson forseti,
Ásgrímur Sigurbjörnsson, Einar Guðmundsson, Guðmundur Páll
Arnarson, Guðmundur Sveinn Hermannsson, Ólafur Steinason, Ragnar
Magnússon, Sigrún Pétursdóttir, Stefanía Skarphéðinsdóttir,
Þorsteinn Berg og Elín Bjarnadóttir framkvæmdastjóri.
1. Verkaskipting stjórnar og kosning
fastanefnda.
Kristján Kristjánsson bauð menn velkomna til starfa, nýja menn
sérstaklega, Ásgrím, Ragnar og Sigrúnu. Stjórnin skipti síðan með
sér verkum: Guðm. Sv. Hermannsson verður varaforseti, Einar
Guðmundsson gjaldkeri og Guðm. P. Arnarson ritari.
Ákveðið var að halda stjórnarfund annan miðvikudag í hverjum mánuði
yfir vetrartímann.
Þá var skipað sérstakt þriggja manna framkvæmdaráð, sem taka skyldi
á málum á milli stjórnarfunda. Í því sitja Kristján Kristjánssn,
Guðm. Sv. Hermannsson og Guðm. P. Arnarson.
Síðan var skipað í fastanefndir: dómnefnd, mótanefnd og
meistarastiganefnd:
Dómnefnd: Jón Steinar Gunnlaugsson formaður,
Guðmundur Sv. Hermannsson og Örn Arnþórsson: Til vara: Pétur
Guðjónsson, Björgvin Þorsteinsson og Gylfi Baldursson.
Mótanefnd: Ragnar Magnússon formaður, Jón
Baldursson og Valgerður Kristjónsdóttir.
Meistarastiganefnd: Einar Guðmundsson formaður,
Ísak Örn Sigurðsson og Þorsteinn Berg.
|
2. Bridgehátíð 1996.
Fyrirkomulag:
Samþykkt var að hafa tvímenning Bridgehátíðar opinn og spila
Monrad- barómeter, þrjú spil á milli para í þremur 30 spila lotum.
Nánari útfærsla verður í samráði við keppnisstjóra. Sveitak. verður
með óbreyttu sniði, þ.e. opinn Monrad með tíu stuttum leikum.
Erlendir gestir: Elín greindi frá því að búið væri að
bjóða ítalska landsliðinu (Lauria, Vercase, Buratti og Lanzarotti),
Zia við fjórða mann, og verið væri að vinna í því að fá Omar Sharif
á hátíðina á móti Ritu Shugart.
Verðlaun: Ákveðið var að hækka heildarverðlaun úr 15.000 $
í 18.000 $.
|
3. Philip Morris -
landstvímenningur.
Ákveðið var að hækka keppnisgjaldið úr 1.500 kr. á par í 2.000
kr., en skilagjald til BSÍ verði óbreytt 1.500 kr.
|
4. Landsliðsmál.
Framkvæmdaráði var falið að ganga til samninga við Björn
Eysteinsson um taka að sér hlutverk landsliðsfyrirliða opna
flokksins fyrir tímabilið 1. jan 1996 fram yfir EM 1997 og
hugsanlega HM sama ár.
|
5. Ráðning framkvæmdastjóra.
Þrettán umsóknir bárust um stöðu framkvæmdastjóra BSÍ.
Voru umsóknirnar kynntar og ræddar, en framkvæmdaráði síðan falið
að ráða framkvæmdastjóra fyrir næsta stjórnarfund, þann 13.
desember.
|
6. Fræðslumál.
Einar Guðmundsson ræddi þá hugmynd að koma á unglingaskóla á
vegum BSÍ og reyna að fá til þess styrk frá Reykjavíkurborg og
hugsanlega fleiri sveitarfélögum.
Var ákveðið að hrinda af stað slíku námskeiði eftir áramót í
tilraunaskyni.
|
7. Önnur mál.
Samþykkt var tillaga Stefaníu Skarphéðinsdóttur þess efnis að
BSÍ stæði straum af kostnaði v/húslaleigu í Ölfusborgum í tengslum
við helgarnámskeið kvenna.
|