- Ron Klinger - Ísak Örn Sigurðsson þýddi
1.000 kr.
Íslensk þýðing á hinni þekktu bók Rons Klinger, The Modern Losing Trick Count. Tapslagatalningin er öflug aðferð til að meta styrk handarinnar þegar tromplitur hefur fundist - oft mun nákvæmari en hefðbundin punktatalning.
Klinger útskýrir aðferðina skref fyrir skref og sýnir með fjölda dæma hvernig hún hjálpar spilurum að finna frábærar slemmur á fáum punktum og forðast vonlausa samninga.
Bók sem getur gjörbreytt sagnmati allra spilara, jafnt byrjenda sem lengra kominna.
Bókina má kaupa og fá afhenta hjá Bridgesambandi Íslands, Síðumúla 37.