- Guðmundur Páll Arnarson
3.500 kr.
Vinnubók á öðru stigi Bridgeskólans þar sem sagnkerfið er tekið föstum tökum. Farið er skipulega í gegnum lykilatriði í sögnum: einn yfir einum, tveir yfir einum, kröfugrand við hálit, Stayman og yfirfærslur og loks slemmusagnir. Hverjum kafla fylgja skýrar útskýringar og fjöldi æfinga sem festa efnið í sessi.
Bókin hentar einstaklega vel sem námsefni á námskeiðum og fyrir spilara sem vilja byggja upp traust og nútímalegt sagnkerfi með spilafélaga sínum.
Bókina má kaupa og fá afhenta hjá Bridgesambandi Íslands, Síðumúla 37.