Sveit Ljósbrár leiðir

laugardagur, 3. desember 2022

Sveit Ljósbrár leiðir Íslandsmótið í parasveitakeppni eftir 4 umferðir af 7 með 62.35 stig. Ljósbrá vann Tekt ehf í lokaleik dagsins og hefur tryggt sér tæplega 5 vinningsstiga forystu. Í sveit Ljósbrár spila Ljósbrá Baldursdóttir - Matthías Þorvaldsson - Hjördís Sigurjónsdóttir - Kristján Blöndal

Í fyrsta leik á morgun spilar Ljósbrá við sveit Mottu sem er í öðru sæti. En í sveit Mottu spila m.a. landsliðseinvaldurinn Anna Ívarsdóttir og í hinum salnum spilar makker Önnu til margra ára Guðrún Óskarsdóttir.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar