Grant Thornton efstir

sunnudagur, 23. október 2022

1. deildin var spiluð í deildarkeppni Bridgesambands Íslands um helgina. Fjórar efstu sveitirnar munu síðan spila til úrslita 19-20. nóvember en sömu helgi verður 2. deildin einnig spiluð. 

Grant Thornton sem eru efstir mega velja á milli Tick Cad og Info Capital í undanúrslitum. Ef þeir velja Info Capital munu þeir fara með 16 impa í forgjöf sem er helmingurinn af því sem þeir unnu Info Capital um helgina. Ef þeir velja Tick Cad munu þeir byrja með -2 impa. Sveit Info Capital er þó fyrnasterk og óvíst að 16 impa forgjöf muni skipta einhverju máli þegar á reynir á móti svo sterkri sveit. 

Fjórar neðstu sveitirnar munu spila í 2. deild og geta unnið sér aftur inn réttinn til að spila í efstu deild. 

Úrslitinn urðu annars eftirfarandi. 

1 131.38 Grant Thornton
2 119.47 Betri frakkar
3 115.63 Tick Cad
4 99.07 Info Capital
5 96.92 Kjaran gólfbúnaður
6 81.19 Vinir Gulla
7 76.47 Hjálmar S Pálsson
8 65.01 Doktorinn
9 61.88 FRÉTTABLAÐIÐ-HRINGBRAUT
10 52.98 SFG

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar