Anna Ívars velur æfingahóp fyrir kvennaflokk

mánudagur, 5. september 2022

Búið er að velja æfingahóp fyrir kvennaflokkinn. Lagt var upp með að fá í hópinn góða blöndu af reynsluboltum og yngri spilurum og gekk það eftir að mestu. Haustið verður notað í paravinnu og  til  að spila æfingamót.  Í janúar verða svo þau 3 pör valin sem spila á NM2023 sem verður haldið í Svíþjóð næsta sumar. Í æfingahóp eru þessar konur :

Anna Guðlaug Nielsen og Helga Sturlaugsdóttir

Anna Heiða Baldursdóttir og Inda Hrönn Björnsdóttir

Arngunnur R. Jónsdóttir og Alda Guðnadóttir

Guðný Guðjónsdóttir og Þorgerður Jónsdóttir

Harpa Fold Ingólfsdóttir  og María Haraldsdóttir Bender

Hrefna Harðardóttir og Mary Campell

Sigrún Þorvarðsdóttir og Ólöf Ingvarsdóttir

Svanhildur Hall og Hallveig Karlsdóttir

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar