Sveit Grant Thornton deildarmeistarar

sunnudagur, 6. mars 2022
Það náðist loksins að klára Deildakeppnina 2021, nú í mars 2022.
Sveit Grant Thornton varð Deildameistari í fyrstu deild, eftir hörku rimmu við sveit InfoCapital. Spiluð voru 64 spil og að þeim loknum var munurinn aðeins 3 impar í vel spiluðum leik.
Í annari deild þá náðu Betri Frakkar - seníorar sigri, en sveit Herakles var mjög skammt að baki þeim í öðru sæti.
Skemmtilegasta par Deildakeppninnar voru svo Þorgerður Jónsdóttir og Sigurjón Björnsson.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar