Ölfus og Bridgesambandið í samstarf

miðvikudagur, 23. mars 2022

Ölfus og Bridgesambandið í samstarf

Ölfus hefur boðið Bridgesambandinu að úrslitin í sveitakeppninni verði haldin í  Versölum 21.-24. apríl. Það er eitt af markmiðum Bridgesambandsins að kynna bridge um land allt og er það mjög spennandi að fara í samstarf við Ölfus og efla umgjörðina um þetta mót.

Það er sérstaklega jákvætt að finna áhuga og jákvæðni bæjarstjórnar í Ölfusi þegar kemur að bridge. Það er ljóst að úrslitin verða mjög spennandi og er það mikið tilhlökkunarefni að spila á stað hamingjunnar.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar