3 svæðamót í tvímenningi um næstu helgi

mánudagur, 13. mars 2006

Þrjú svæðamót í tvímenningi fara fram um næstu helgi, Reykjanes, N-Vestra og Vesturland. Laugardaginn 18. mars fer fram svæðamót Reykjaness í tvímenningi og spilastaður er Hamraborg 11 og spilamennskan hefst klukkan 11:00.
Sunnudaginn 19. mars verða svæðamót N.Vestra og Vesturlands spiluð. Spilastaður fyrir N-Vestra er Siglufjörður, bíósalurinn. Spilastaður fyrir svæðasamband Vesturlands er að Kirkjubraut 40 á Akranesi. Bæði þesi mót hefjast klukkan 10:00. Spilagjaldið er kr. 5.000 á parið í öllum svæðamótunum. Varðandi nánari upplýsingar, vísast á viðburðadagatal en þar eru gefin upp símanúmer tengiaðila.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar