Rangæingar -- Lokahóf

fimmtudagur, 19. apríl 2018

Síðasta vetrardag komum við Rangæingar saman á varaheimavelli okkar, Gunnarshólma í A-Landeyjum, og héldum árlegt lokahóf okkar.    Byrjuðum á því að veita verðlaun fyrir veturinn og lékum að því loknu 28 spila monrad barometer með þátttöku 14 para.

Á lokahófinu er einkar vel séð að menn hafi með sér nesti, enda vitum við það Rangæingar að menn eiga ekki að leggja nestislausir í langferðir.   Nestisneyslan fór mis vel í menn, hvað árangur varðaði.  "Mér fannst við vera góðir í kvöld, við sátum allt kvöldið á fyrsta borði" sagði glerskerinn kátur að leikslokum og klappaði makker sínum á bakið.   "Nei makker þar vorum við nú ekki" svaraði fisksalinn, "við vorum á 7. borði".

Allir fengu ölverðlaun, enda við Rangæingar ósparir á verðlaunafé. Ögn meira en þó varla sem heitið geti, fengu efstu þrjú sætin að launum.   

Hnífurinn er farinn að ryðga nokkuð hjá slátraranum, stálið ónýtt og byssan stendur á sér, enda slátrarinn ekki drepið grip lengi.  Hann og trillukarlinn urðu þó í þriðja sæti, enda með grunnmálið, keiplengd og dýpi á hreinu.   54,28% skor.

Í öðru sæti urðu Sigurjón og afleysinga-Örninn með 55,1% skor.  Örn er svona super-sub, sem menn þekkja úr boltanum. 

Birnir geta verið grimmir en okkar Bjorn var alls ekki grimmur þetta kvöld.  Þvert á móti mildur, eiginlega afar mildur.   Það gerði honum bara gott og unnu þeir leikbræður Dúason og Gestsson kvöldið með nokkrum yfirburðum, 62,2% skor.

Við Rangæingar áttum góðan vetur að vanda og göngum nú til vorverka með bros á vör.  Einhverjir fara að huga að því að bylta landi og bera á.  Sauðburður er framundan hjá öðrum og enn aðrir fleyta bát úr nausti og hugsa til metróðra á komandi sumri.   Golfkylfur taka við af spilunum  hjá sumum.

Áður förum við þó til Finnlands, þann 28. apríl nk., og heilsum upp á þarlenda spilara.    Það er gríðarlegt tilhlökkunarefni.   Gleðilegt sumar!

Úrslit og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar