Úrslit úr HSK móti eldri borgara í Bridge

mánudagur, 25. mars 2013

Fyrsta HSK mótið í bridds fyrir keppendur 67 ára og eldri var haldið í Selinu á Selfossi laugardaginn 16. mars sl. 14 pör tóku þátt og fyrstu HSK meistarar eldri borgara urðu þeir Helgi Guðmundsson og Pétur Skarphéðinsson.

Mótið fór vel fram og skemmtu spilarar sér hið besta í góðum félagsskap. Fólk hafði orð á því að keppnin væri komin til með að vera. Keppendur voru ánægðir með þetta framtak, sem Leif Österby á heiðurinn að, en hann og Svavar Hauksson sáu um undirbúning mótsins. Brynjólfur Gestsson stjórnaði mótinu af festu og myndarskap.

Hluti keppenda á HSK móti eldri borgara 2013, ásamt Brynjólfi keppnisstjóra

Röð Par

Stig

1.

Helgi Guðmundsson og Pétur Skarphéðinsson

188

2.

Kjartan Kjartansson og Sigfús Skúlason

181

3.

Ásgeir Gestsson og Guðmundur Böðvarsson

180

4.

Elín Kristmundsdóttir og Oddleifur Þorsteinsson

179

5.

Guðrún Einarsdóttir og Hreinn Ragnarsson

168

6.

Karl Gunnlaugsson og Jóhannes Sigmundsson

167

7.

Bjarni Sæberg Þórarinsson og Helga Haraldsdóttir

162

8.

Gunnar Gränz og Halldór Magnússon

160

9.

Sigurjón Guðbjörnsson og Guðlaug Birgisdóttir

150

10.

Gunnar Kristmundsson og Guðbrandur Kristmundsson

148

11.

Úlfar Guðmundsson og Hörður Thoraensen

147

12.

Svavar Hauksson og Leif Österby

119

13.

Árni Friðriksson og Leifur Eyjólfsson

108

14.

Greta Urban og Hrafnhildur Jóhannsdóttir

89

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar